Fjöldi fólks er á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal farþegar sem ætluðu að fljúga af landi brott með Icelandair í morgun. Þar er líka Ragnar Visage ljósmyndari sem tók þessar myndir í morgun
Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður og Víðir Hólm Ólafsson tökumaður mættu í Leifstöð klukkan sex. Hún segir að flugfarþegum hafi fjölgað mikið síðan þá en fólk sé samt rólegt að bíða eftir upplýsingum.
Enginn starfsmaður er við innritunarborðin á vegum Icelandair, og þar hefur mjög löng biðröð myndast af Icelandair flugfarþegum. Hólmfríður segir að viðmælendur hennar sýni þessu skilning, og vissu klárlega hvað var í vændum. Flugfarþegar bíði frekari upplýsinga.
Í kallkerfinu er verið að bjóða rútuferðir ókeypis í bæinn.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um verkfall flugvirkja hjá Icelandair og þau áhrif sem það hefur á millilandaflug og innanlandsflug Icelandair.
Flugfélagið felldi í gærkvöld niður allar flugferðir sem áttu að hefjast að morgni. Reynt verður að koma fólki á áfangastað með öðrum flugfélögum.
Hér flytjum við fréttir af því sem er að gerast á flugvöllum landsins og því hvort gangur komist á viðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair um samning.