26 voru drepnir, þar af sjö fangaverðir, og yfir eitt hundrað fangar eru slasaðir eftir óeirðir í Negombo-fangelsi í vestur Srí Lanka á síðustu tveimur dögum.
Svo virðist sem átök hafi brotist út milli tveggja hópa fanga á sunnudag. Fangar réðust að fangavörðum og tóku byssur þeirra. Tveir létust á sunnudag og tugir særðust.
Átök héldu svo áfram í gær þegar fangarnir reyndu að brjótast út um öryggislið fangelsins. Öryggissveitir voru kallaðar til og fjölmargir skothvellir heyrðust frá fangelsinu.
Nokkrir aðstandendur fanganna komu saman fyrir utan fangelsið og reyndu að afla sér upplýsinga um hvaða fangar hefðu látist og hverjir hefðu slasast.
Ráðherra dómsmála og fangelsa, Harshana Nanayakkara, hefur óskað eftir því að málið verði rannsakað.
Óeirðir koma öðru hverju upp í fangelsum á Srí Lanka en þetta eru verstu óeirðirnar á síðari árum. Alls eru rúmlega 41.250 fangar í fangelsum á eyjunni en það er um fjórfalt fleiri fangar en pláss er fyrir í fangelsum landsins.