Evrópska loftslagsstofnunin Kópernikus segir flest benda til þess að veðurfyrirbærið El Niño verði með öflugari hætti í ár. Afleiðingar þess gætu orðið þær að 2027 verði heitasta ár sögunnar.
El Niño-fyrirbærið á upptök í Kyrrahafi og myndast á tveggja til sjö ára fresti þegar yfirborðshitastig sjávar verður óeðlilega heitt. El Niño hefur áhrif á veðurfar um allan heim og er fyrirboði um hitastig og veðurfar.
Þá benda mælingar stofnunarinnar til að hitastig yfirborðs sjávar í maímánuði slái fyrri met innan nokkurra daga.