16 umsóknir bárust um stöðu sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastandar. Umsóknarfrestur rann út 30. júní. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka.
Alexandra Jóhannesdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, var nýverið ráðin sveitarstjóri Suðurnesjabæjar.
Þrír fyrrverandi sveitarstjórar eru meðal umsækjenda: Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Skaftárhrepps, Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri á Tálknafirði, og Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri Strandabyggðar.
Hér að neðan má sjá lista yfir umsækjendur í stafrófsröð:
- Aðalheiður Sigursveinsdóttir, ráðgjafi
- Arnar Loftsson, fasteignasali
- Birgir Andri Óskarsson, afgreiðslumaður
- Birta Rán Björgvinsdóttir, kvikmyndatökukona
- Einar Kristján Jónsson, fyrrv. sveitarstjóri
- Hildigunnur Rut Jónsdóttir, mannauðsfulltrúi
- Jón Tryggvi Sveinsson, verkefnastjóri
- Magnea Marinósdóttir, framkvæmdastjóri
- Maríanna Hugrún Helgadóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson, fyrrv. sveitarstjóri
- Sigríður Kristín Jónasdóttir, verkefnastjóri
- Sigurður Sigurðsson, rekstrarstjóri
- Steinar Þór Magnússon, þjónn
- Þorgeir Pálsson, fyrrv. sveitarstjóri