Að minnsta kosti 14 létust þegar tvær farþegalestir skullu saman fyrir utan Jakarta á Indónesíu í gærkvöldi. Þá voru 85 fluttir á spítala til aðhlynningar.
Fréttastofan AFP hefur eftir einum farþega að lestin sem hún var í hafi stöðvað á Bekasi Timur-lestarstöðinni um 25 kílómetra fyrir utan Jakarta til að hleypa farþegum út. Skyndilega hafi komið önnur lest sem kom á mikilli ferð og klesst á aftasta farþegarvagninn.
Farþegavagninn var yfirfullur af farþegum sem flestir voru á leið heim úr vinnu. Margir tróðust undir öðrum farþegum við áreksturinn. Sumir farþegar voru enn fastir í lestarvagninum þegar björgunarlið kom á vettvang.
Forseti Indónesíu, Prabowo Subianto, hefur fyrirskipað að lestarslysið verði rannsakað. Hann sagði að mörg lestargatnamót væru ekki undir eftirliti og hann hefði fyrirskipað að bætt yrði úr því hið snarasta.