Forseta Íslands hefur aldrei verið boðið í eins gamalt afmæli eins og í dag en það var 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps.
Hátíðardagskrá var á Flúðum í tilefni dagsins þar sem forsetinn eignaðist meðal annars sundtösku með íslenska fánanum og risa grænmetiskörfu.
Frú Halla Tómasdóttir og Björn maður hennar voru mætt á Flúðir um hálf tólf í morgun við Gömlu laugina þar sem þau fengu kynningu á lauginni og starfsemi hennar en laugin er mjög vinsæl, ekki síst á meðal erlendra ferðamanna. Þau heimsóttu líka Flúðasveppi og borðuðu þar hádegismat. Síðan var Viss verndaður vinnustaður á Flúðum, heimsóttur.
En 1150 ára afmæli, er það ekki bara eitthvað grín?
„Nei, þetta er bara samkvæmt landnámu, það er búið að reikna þetta út nokkurn veginn,” segir Esther Guðjónsdóttir, formaður afmælisnefndar.
En hvað er svona sérstakt við þennan hrepp?
„Hann er bara bestur, Gullhreppurinn, það er nóg af mat alls staðar allt í kringum okkur, í ánum og landinu, það er málið,” segir Esther.
„Mér finnst þetta bara forréttindi að fá að vera hérna, mér líkar mjög vel. Þannig að ég hvet alla til að kynna sér hvernig er að búa í Hrunamannahreppi og Uppsveitum Árnessýslu þar sem er auðvitað mekka mannlífs og náttúru,” segir Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps.
Fjöldi fólks safnaðist saman við félagsheimilið þegar forsetahjónin komu þangað og þar fengu þau risa grænmetiskröfu að gjöf, allt grænmeti úr Hrunamannahreppi.
Síðan var hátíðardagskrá í Félagsheimilinu þar sem Karlakór Hreppamanna söng meðal annars nokkur lög.
„Ég fæ mörg og fjölbreytt boð í afmæli en þetta er örugglega það elsta sem ég hef fengið boð um og skemmtilegt að það sé verið að halda upp á það og þau eru með sannanir segja þau mér. Hér er bara mikil uppbygging og mikið um að vera og nýlega eftir því sem ég kemst næst er búið að velja af Unicef þessa byggð, sem hugsar sérstaklega vel um börnin og það er eitthvað sem skiptir mig svo miklu máli,” segir Frú Halla.
Á vinnustofu VISS fékk Halla glæsilega gjöf sem hún er mjög ánægð með.
„Þar sem þessi einstaka taska var búin til fyrir mig og þetta verður núna sundtaskan sem ég fer með í Gömlu laugina og fer með víða, forsetataskan,” segir Halla alsæl með heimsóknina í Hrunamannahrepp í dag.