Karlmaður sem flutti hingað til lands og slasaðist alvarlega eftir nokkurra mánaða vinnu fær ekki þær tryggingabætur sem honum höfðu verið dæmdar í héraði. Landsréttur sneri fyrri dómi við. Dómararnir sögðu að ekki hefði verið sýnt fram á að víkja ætti frá almennum viðmiðum um bætur.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sjóvá-Almennar til að greiða manninum 147 milljónir króna í bætur vegna örorku sem maðurinn hlaut í vinnuslysi. Frá því áttu að dragast greiðslur upp á 47 milljónir sem tryggingafélagið hafði greitt manninum á grundvelli síns mats.
Bæturnar miðast við hverjir framtíðartekjumöguleikar mannsins hefðu verið ef ekki væri fyrir slysið.
Tryggingafélagið og manninn greindi á um hvort miða ætti bætur við meðallaun síðustu þriggja ára eða launin sem maðurinn hafði í því starfi sem hann gegndi þegar hann slasaðist.
Héraðsdómur dæmdi manninum í vil og sagði að greiða ætti honum bætur miðað við þau laun sem hann hafði þegar slysið varð. Þau laun voru tvöfalt hærri en lágmarksviðmið.
Tryggingafélagið sætti sig ekki við þetta og taldi að dæma ætti manninum bætur út frá meðallaunum hérlendis og erlendis síðustu þrjú árin, ekki aðeins miða við tekjur mannsins síðustu fjóra mánuði á Íslandi.
Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og sagði ekki hafa verið sýnt fram á að víkja ætti frá almennum reglum um útreikninga á bótum. Því þarf tryggingafélagið ekki að greiða 100 milljónir til viðbótar þeim 47 milljónum sem manninum höfðu þegar verið greiddar vegna slyssins.