Vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna stendur tæpt og hafa fulltrúar beggja hliða sakað hver annan um að brjóta gegn því. Ísraelsher hefur gert loftárásir í suðurhluta Líbanons og gefið út rýmingarskipanir en Hezbollah segist hafa ráðist á ísraelskar hersveitir.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir aðgerðir Hezbolla grafa undan vopnahléinu og hann hefur heitið áframhaldandi árásum.
Hezbollah samtökin hafna hins vegar yfirlýsingum forsætisráðherrans og segja árásir sínar lögmætt svar við endurteknum brotum af hálfu Ísraela og áframhaldandi hernámi í suðurhluta Líbanons.
Á þriðja þúsund Líbana fallið í árásum Ísraels
Að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda hafa yfir 2.500 manns fallið í árásum Ísraels í landinu frá því í byrjun mars. Þrátt fyrir tímabundið vopnahlé hafa átökin færst í aukana á ný og óvissa ríkir um hvort samkomulagið haldi.
Í gær varð ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundarhöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans.
Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að ringulreið ríkti innan stjórnkerfis Írana og að óljóst væri hver réði.
„Engin veit hver ræður, ekki einu sinni þeir sjálfir,“ sagði Trump á Truth Social.
„Þar að auki erum við með öll spilin á okkar hendi, þeir hafa engin! If þeir vilja tala, þurfa þeir einungis að hringja!“