Trump birti færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social á laugardag þar sem kemur fram að áætlað sé að samkomulagið verði undirritað í dag og ítrekar að strax eftir undirritun verði Hormússundið opið öllum.
BBC greinir frá þessu og segir að sendinefnd frá Katar, sem einnig hefur milligöngu í viðræðunum, hafi komið til Tehran í dag en ekki sé ljóst hvort að koma nefndarinnar hafi áhrif á tímasetningu undirritunar Írans.
Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmail Baghaei, hafði fyrr lýst yfir efasemdum um tímasetningu undirritunar samkomulagsins. En ríkismiðlar höfðu eftir honum að undirritunin „muni ekki eiga sér stað á morgun“, en „líkurnar á því að gengið verði frá viljayfirlýsingu á næstu dögum séu miklar“.
Í gær sögðu fulltrúar Pakistans, sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna, að samkomulagið yrði líklega undirritað innan sólarhrings.
Brothætt vopnahlé hefur verið í gildi í Íran frá 7. apríl og ríkin skipst á árásum. Á síðustu vikum hefur Trump ítrekað fullyrt að stjórnvöld væru nálægt samkomulagi.
Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði fyrr í dag langt frá því að friður væri í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi.
Þrír dagar eru síðan Trump hótaði að gera öflugar árásir á Íran og hernema Kharg-eyju. Þeim árásum var síðan aflýst sama dag. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar.
Trump fagnar einnig stórafmæli í dag en hann er áttræður. Hann hyggst halda stærðarinnar bardagasýningu á grasfleti Hvíta hússins í tilefni afmælisins.