Vinnustofa um málefni Grindavíkur lýkur störfum í dag og segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem veitir verkefninu forystu, að ætlunin sé að niðurstöður hennar verði kunngjörðar í skýrslu sem gerð verður opinber í lok þessa mánaðar.
Hann kveðst vonast til þess að niðurstaða vinnunnar leiði til þess að búið verði í Grindavík á nýjan leik.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.