Vísir fjallaði um Saqar nýlega þar sem hún lýsti lífi sínu á Íslandi og hvernig staðan er í Íran.
Diljá hóf ræðu sína á því að lýsa því hvernig hún hafi ekki verið vinsæl meðal stráka þegar hún var í skóla því hún hafi verið hávær og tekið gjarnan slaginn fyrir konur. Hún sagði meðal annars frá því að henni hefði verið vísað úr tíma fyrir að rífast við kennara sem hafði beðið bekkjarbræður Diljár að vera ekki „svona miklar kellingar“.
„Í menntaskóla sviðsetti ég Píkusögur og hóf vitundarvakningu um kynferðisofbeldi með myndum af áberandi karlmönnum í skólanum. Ég vildi leggja mitt af mörkum og fannst ég bara oft ansi hugrökk þegar ég mætti mótlæti,“ sagði Diljá.
Hún hafi hins vegar fengið Sawar í heimsókn til sín í þingið í gær og rætt við hana.
„Hún talar glimrandi íslensku eftir 4 ár hér og lýsir ömurlegri stöðu kvenna í Íran. Það er óhætt að mæla með umfjöllun Vísis og ég sé að hún er gestur í Einni pælingu sömuleiðis,“ sagði Diljá.
Hún sagði frá því að írönsk söngkona hefði verið hýdd 74 sinnum á mánudag fyrir að koma fram án slæðu og hljómsveitarmeðlimir hennar hlutu sömu örlög og fleiri refsingar.
„Saqar lýsti því einmitt fyrir mér hvernig íranskar konur rífa af sér slæðurnar í flugvélum sem fljúga frá Teheran og setja þær aftur upp á heimleiðinni,“ sagði Diljá.
Hún sagði stöðu mannréttinda í Íran ömurlega þótt klerkastjórninni hefði ekki enn tekist að brjóta niður baráttuvilja þjóðarinnar.
„Gerum ekki lítið úr baráttu kvenna hér. Hér er áfram verk að vinna og vonandi halda íslenskar stelpur áfram að vera háværar og valda usla. En munum um leið eftir ofsóttum og þjáðum systrum okkar svo alltof, alltof víða.“