Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen ætlar að fækka starfsfólki um hundrað þúsund fyrir lok þessa áratugar.
Fyrirtækið segist þegar hafa samið við verkalýðsfélög um 50 þúsund uppsagnir til viðbótar jafnmörgum og þegar hafði náðst samkomulag um. Volkswagen hefur glímt við fjárhagsvanda um nokkurra ára skeið, ekki síst vegna harðrar samkeppni við kínverska rafbílaframleiðendur.