Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri í Reykjavík, hefur kynnt stefnumál sín fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí. Meðal áherslumála framboðsins er að Reykjavík eigi að vera fyrir alla og borg friðar og mannréttinda, að ryðja úr vegi efnahagslegum hindrunum fyrir öll börn og að borgin eigi að vera lifandi borg með greiðu aðgengi að menningu, sem felst meðal annars í því að styðja við listafólk.
Þá leggur Vinstrið einnig áherslu á að draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun og á náttúruvernd í höfuðborginni. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, segir framboðið mikilvægt að Reykvíkingar geti búið sér heimili og liðið vel.
„Til þess þurfum við félagslegar lausnir á öllum sviðum borgarinnar sem nýtast heildinni. Og hvort sem það er þá uppbygging húsnæðis og innviða, þjónusta við íbúa eða menntun barna. Við erum að einblína á að Reykjavík er fyrir okkur öll og borgin á að vera borg friðar og mannréttinda en til þess að ná því þurfum við auðvitað að einblína á að tryggja grunninn, það er heimili og húsnæði,“ segir Sanna Magdalena.
Ekki eigi að braska með heimili fólks. Þá sé það hlutverk Reykjavíkurborgar að auka framboð á húsnæði svo fólk geti eignast heimili eða leigt til framtíðar.
Samgöngur eru umhverfismál
„Við stöndum með borgarlínu. Það hafa verið miklar tafir og það eykur tafirnar ef það á að fara að endurskoða allt aftur. Það er búið að komast að einhverri áætlun, þá þarf að standa við hana og að við séum að gera allt sem við getum til að flýta því að koma hérna á betri, áreiðanlegri, almenningssamgöngum,“ segir Sanna Magdalena.
Gott flæði samgangna sé ekki aðeins samgöngumál – heldur líka umhverfismál.
„Náttúrugæðin, þau umlykja okkur og eru undirstaða heilbrigðs samfélags. Við þurfum til dæmis að vernda lífbreytileikann í Reykjavík og viljum leyfa því villta að vaxa í borgarlandinu og friðlýsa fleiri svæði.“
Í þessu samhengi segir Sanna Magdalena mikilvægt að íbúar hafi greiðan aðgang að grænum svæðum í sínu nærumhverfi.
„Og líka að þau séu hönnuð og hirt þannig að þau séu okkur til yndisauka. Þetta er mjög mikilvægt, að við séum að skipuleggja þannig að íbúar hafi aðgang að grænu svæðunum.