Sunnudaginn 26. apríl síðastliðinn var mikil spenna í loftinu í Laugarásbíói þegar stórmyndin Michael var sýnd. Fyrir sýninguna brá mörgum bíógestum í brún þegar sjálfur kóngur poppsins virtist vera mættur á svæðið, og það í nokkrum útgáfum.
Hér var á ferðinni samheldinn vinahópur sem ólst upp við tónlist Michael Jackson og ákvað að gera sem mest úr bíóferðinni. Til að heiðra goðsögnina mættu nokkrir úr hópnum klæddir í nákvæmar eftirlíkingar af frægustu sviðsfötum Jackson og annarra lykilmanna úr lífi hans.
Byrjað á pulsu í dalnum
Ferðalagið hófst á hinni sönnu íslensku hefð: pulsu í Laugardalnum. Það vakti eðlilega mikla athygli vegfarenda þegar hópur manna í fullum skrúða,tilheyrandi leðurjökkum, hvítum jakkafötum og glimmeri, gæddi sér á pulsu með öllu og ískaldri kók áður en haldið var í bíó. Stemningin í hópnum var vægast sagt rafmögnuð.

Bad, Smooth Criminal og Barry Gordy
Metnaðurinn fyrir búningunum var engu líkur og smáatriðin á hreinu. Helgi Már Erlingsson klæddist svörtum leðurgalla sem vísaði beint í Bad-tímabilið, á meðan Ágúst Bjarnason, kallaður Gústi Hollywood, var stórglæsilegur í hvítu jakkafötunum úr Smooth Criminal tónlistarmyndbandinu.
Þá var Ragnar Miguel mættur í Dangerous-gírnum og annar Ragnar brá sér í hlutverk sjálfs tónlistarmógúlsins og plötuútgefandans Barry Gordy.
„Helgi Már keypti nákvæmar eftirlíkingar af Bad og Thriller búningunum í London. Við hinir fórum í Partýbúðina og reyndum að setja saman búningana sjálfir,“ segir Gústi hæstánægður með bíóferðina.

Hópurinn stillti sér að sjálfsögðu upp við plakat myndarinnar í anddyri Laugarásbíós, tók nokkur vel valin dansspor og sýndi og sannaði að tónlist og stíll Michael Jackson lifir enn góðu lífi á Íslandi.

Kunnið þið öll lögin, dansinn, taktana?
„Við kunnum allir Michael Jackson dansana en menn eru misjafnlega feimnir við að láta ljós sitt skína á almannafæri.“
Er eitthvað lag og/eða plata MJ sem er í meira uppáhaldi en annað?
„Smooth Criminal“, segir Gústi en hann mætti sem Jackson í myndbandi lagsins. „Thriller er uppáhald Helga en allir vinirnir eru sammála um að Michael Jackson er besti tónlistarmaður frá upphafi.“
Aðspurður um hvort vinahópurinn sé duglegur að hittast og gera eitthvað öðruvísi, líkt og búningaþema fyrir myndina svarar Gústi játandi.
„Það er alltaf fjör í vinahópnum og yfirleitt gengið of langt með hlutina. Helgi og ég kunnum ekki að skammast okkar sem hvetur aðra til að taka þátt í vitleysunni.“

Gústi mælir með að vinahópar taki sig saman reglulega og geri eitthvað skemmtilegt saman.
„Það er mikilvægt að geta haft gaman af lífinu þó flestir séu uppteknir í ábyrgðarstöðum og eigi stórar fjölskyldur. Eftir svona hópferðir eru allir endurnærðir og mælum við strákarnir með að allir vinahópar mæti á Michael í búningi til heiðurs Konungi poppsins.“

Og síðast en ekki síst: Hvernig var myndin, er hún bara fyrir aðdáendur Micheal Jackson eða geta allir skemmt sér?
„Myndin hefst með Michael og bræðrum hans sem bjuggu við mikla fátækt í Gary Indiana. Faðir þeirra setur saman hljómsveitina Jackson Five þar sem átta ára Michael vekur strax athygli. Sagan sýnir svo hversu mikið Michael lagði á sig áður en hann öðlaðist heimsfrægð. Mjög jákvætt fyrir ungt fólk að sjá vinnuna á bak við árangurinn.“