Hópur sérfræðinga í Japan hvetur stjórnvöld til að breyta löggjöf landsins og gera það refsivert að kaupa vændi. Í dag er það ekki refsivert en áratugum saman hefur það þó verið refsivert að selja vændi og geta vændiskonur átt yfir höfði sér sekt eða jafnvel fangelsisdóm. Japan hefur þannig verið sér á parti hvað þennan málaflokk varðar meðal þróaðra ríkja.
Sérfræðingarnir segja að kaupendum ætti bæði að vera refsað fyrir að kaupa vændi í persónu en einnig á netinu, þar sem töluvert af vændisstarfsemi fer fram. Talið er mjög líklegt að dómsmálaráðuneyti landsins fari að tillögum ráðsins. Þær kveða einnig á um að samningaviðræður um vændi á götum úti og það að bera sig eftir vændi skuli gert refsivert.
Talsmenn breyttrar löggjafar vilja að „norræna módelið“ verði tekið upp í Japan, þar sem vændissala er afglæpavædd. Tillögurnar kveða þó ekki á um það, né heldur að telja það til vændisstarfsemi sem felur í sér annað en beint samræði.
Ráðið segir að vændiskonur selji margar aðgang að líkama sínum af fúsum og frjálsum vilja. Það gangi gegn siðprýði samfélagsins og sé ekki eitthvað sem æskilegt væri að afglæpavæða.
Risa, fyrrverandi vændiskona í hópnum Toka, eða Ljósið, sem berst fyrir réttindum þeirra sem hafa þurft eða verið neyddar til að stunda vændi, segir að vændiskonur geti ekki tilkynnt ofbeldi sem þær verða fyrir af ótta við að lögregla og samfélagið telji þær til glæpamanna. Hún er því fylgjandi afglæpavæðingu. Hún segir við AFP að það sé gömul mýta að konur stundi vændi af fúsum og frjálsum vilja. Flestar geri það af illri nauðsyn