Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir upplýsingum um ferðir tveggja unglingspilta sem fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi þann 13. september síðastliðinn og hefur verið leitað að síðan.
Piltarnir heita Cezary Kobiela, 15 ára, og Szymon Suchecki, 14 ára.
Cezary er um 178 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með stutt, skollitað hár. Þegar síðast var vitað um ferðir hans var hann klæddur í svarta peysu og svartar buxur.
Szymon er um 165 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með stutt, dökkt hár. Hann var klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og svarta skó.
Lögreglan biðlar til þeirra sem kunna að hafa orðið varir við piltana eða hafa upplýsingar um ferðir þeirra frá 13. september að hafa samband við lögreglu í síma 112.