Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar bindur vonir við að stjórnvöld grípi til aðgerða til aðstoðar við stóran hóp flóttamanna frá Úkraínu sem býr á Bifröst á fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Hópurinn telji 40 manns og þar af séu 24 eldri en 60 ára.
Unnur Brá segir að sveitarfélagið fái ekki endurgreitt fyrir hópinn frá ríkinu vegna þess að hann hefur verið hér lengur en í tvö ár.
„Þessi hópur er alltaf að stækka því ríkið borgar með hópnum í tvö ár og svo ekki lengur. Þá er ekkert annað í boði að sækja fyrir þennan hóp því þau eiga hér engin réttindi annað en að óska eftir fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu sem er ekki há, um 200 þúsund krónur á mánuði.“
Fólkið geti ekki auðveldlega flutt annað vegna þess að húsnæðis- og leiguverð sé hátt auk þess sem vandinn myndi þá flytjast yfir til annars sveitarfélags.
Átti að vera skammtímalausn
Íslenska ríkið, Borgarbyggð og Háskólinn á Bifröst gerðu með sér samkomulag 2022 um opnun og rekstur móttökustöðvar flóttafólks í húsnæði skólans á Bifröst við Hreðavatn í Norðurárdal. Þetta var upphaflega hugsað sem skammtímalausn, aðstaða til að taka á móti þeim fjölda fólks sem leitaði hingað eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu og hýsa það uns heppilegra húsnæði fyndist. Forveri Unnar Brár í sveitarstjórastólnum vakti athygli á vandanum í Speglinum á RÚV fyrir rúmu ári.
„Stjórnvöld buðu þennan hóp velkominn og þau þurfa að horfast í augu við að það að nú eru komnar einhverjar afleiðingar sem ekki voru séðar fyrir og þá þarf að ræða það við okkur,“ segir Unnur Brá.
Viðbúið sé að þeim fjölgi sem þurfi aðstoð á næstunni þegar sumarstörf eru ekki lengur í boði. Sjö mánuði taki að ávinna sér réttindi.
Sveitarfélagið hefur óskað eftir því við stjórnvöld að starfshópur verði settur á fót. Unnur Brá segir að þeim hugmyndum hafi verið vel tekið á fundum félagsmálaráðuneytisins.
„Mér skilst að hann sé í undirbúningi og við bindum bara vonir við það að stjórnvöld sýni okkur skilning og eins þingmennirnir þegar að því kemur að finna fjármagn í það að reyna að grípa til einhverra aðgerða.“
Rætt var við Unni Brá Konráðsdóttur í Morgunútvarpi Rásar 2.