Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum ævi­skeiðum - Vísir

Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum ævi­skeiðum - Vísir

Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum ævi­skeiðum - Vísir

Systurnar eiga margt sameiginlegt. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar, mæður og hafa mikinn áhuga á hreyfingu og heilsu kvenna. Nafnið á nýja heilsustúdíóinu varð til með því að sameina nöfn þeirra, Thelma og Hera, en það vísar jafnframt til enska orðsins therapy og bakgrunns þeirra sem sjúkraþjálfara.

„Okkur langaði að skapa stað þar sem hver kona gæti fundið sína eigin leið að bættri heilsu og vellíðan. Thera Studio er þín therapia,“ segja þær.

Hugmyndin hafði lengi blundað í systrunum en þeim fannst vanta stað þar sem konur gætu nálgast fjölbreytta hreyfingu, faglega heilbrigðisþjónustu og fræðslu undir sama þaki. Hugmyndin tók svo á sig skýrari mynd þegar þær voru báðar í fæðingarorlofi á sama tíma.

„Hera var einnig að glíma við heilsufarsleg einkenni á þessum tíma sem kölluðu á breytingar í starfi og það varð einnig ákveðinn hvati til að stíga skrefið,“ segja þær.

Fyrir konur á öllum aldri

Mömmuþjálfun og meðgönguþjálfun eru stór hluti starfseminnar en þær hafa báðar sérhæft sig í þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu. Nú þegar hafa yfir hundrað mæður skráð sig í þjálfun. Thera Studio er þó alls ekki eingöngu ætlað nýbökuðum mæðrum.

„Við vildum skapa hlýlegt rými þar sem konur á öllum aldri og æviskeiðum upplifa sig öruggar, séðar og velkomnar. Stað þar sem fagmennska og persónuleg nálgun fara saman og konur geta fundið hreyfingu við sitt hæfi hvort sem þær eru að byrja aftur eftir langt hlé eða vilja fjölbreytta og krefjandi þjálfun. Thera Studio á að vera rými þar sem konur geta nært sig líkamlega, andlega og félagslega,“ segja þær.

Meðal annars er hægt að velja um kraftmikla styrktar- og úthaldsþjálfun, Pilates, rólegt flæði og endurheimt. Markmiðið er að hver og ein geti fundið nálgun sem hentar hennar líkama, reynslu og markmiðum.

„Þú þarft hvorki að vera komin í ákveðið form né hafa mikla reynslu af þjálfun til að byrja hjá okkur. Við leggjum áherslu á að mæta hverri konu þar sem hún er stödd.“

Reynsla systranna sem sjúkraþjálfara, meðal annars frá Reykjalundi, þar sem þær unnu með fólki sem glímir við langvinna verki, skerta færni og flókin heilsufarsleg vandamál, nýtist þeim vel. „Við höfum lært hversu mikilvægt er að horfa á einstaklinginn í heild en ekki eingöngu á ákveðinn líkamshluta eða einstök einkenni. Líkamleg heilsa, taugakerfið, svefn, streita, andleg líðan og félagslegar aðstæður geta allt haft áhrif á líðan og getu fólks til að hreyfa sig.“

Fjölbreytt þjálfun og faglegt utanumhald

Í Thera Aðild geta konur valið á milli ólíkra tímategunda á borð við Power, Hot Strength og Hot Sculpt. Power sameinar styrk og úthald, Hot Strength leggur áherslu á styrk, kjarna og líkamsstjórn og Hot Sculpt blandar saman léttri mótstöðu, markvissum endurtekningum og innblæstri frá Barre.

Einnig er boðið upp á lokuð námskeið í Mat Pilates og Somatic Yoga. Þar fylgist sami hópurinn að út tímabilið og þátttakendur fá aukið utanumhald og markvissa uppbyggingu.

Öllum áskrifendum stendur jafnframt til boða að mæta í Slow & Flow á fimmtudagskvöldum. Þar er lögð áhersla á mjúkt flæði, hreyfanleika, endurheimt og slökun.

Æfingarnar eru skalanlegar og lögð er áhersla á styrk, líkamsvitund og góða hreyfistjórn. Hluti tímanna fer fram í infrarauðum hita, sem mörgum finnst hjálpa við stirðleika og verki, en einnig eru tímar án hita.

„Lokuðu námskeiðin geta hentað sérstaklega vel konum sem eru að stíga sín fyrstu skref, hafa ekki hreyft sig lengi eða vilja rólegri og stigvaxandi nálgun. Thera Aðild hentar aftur á móti þeim sem vilja meiri fjölbreytni og sveigjanleika. Markmiðið er að konur upplifi öryggi í þjálfuninni, geti unnið á sínum forsendum, byggt smám saman upp styrk og aukið traust á eigin líkama. Ekki síst viljum við að þær hafi gaman af hreyfingunni,“ segja þær.

Umhverfið hluti af upplifuninni

Mikill metnaður var lagður í húsnæðið í Bæjarlind til að skapa fallegt og hlýlegt umhverfi. Rýmið var meðal annars hannað með þarfir mæðra og barna í huga svo auðvelt væri að mæta með barn, næra það og rækta félagsleg tengsl.

„Umhverfið er mikilvægur hluti af upplifuninni. Við vildum skapa stað þar sem konur finna fyrir öryggi, geta slakað á og tekið sér tíma fyrir sig.“

Þær segja heilbrigði og þarfir kvenna breytast mikið í gegnum lífið. Meðganga, fæðing, grindarbotn, tíðahringur, breytingaskeið og beinheilsa séu allt málefni sem geti haft mikil áhrif á líðan og getu kvenna til að hreyfa sig. Þekkingin er til staðar en konur vita oft ekki hvert þær eiga að leita eða hvaða þjónusta hentar þeim. Draumurinn okkar er að færa faglega þekkingu nær konum og skapa vettvang þar sem þær geta öðlast betri skilning á eigin líkama og heilsu.“

Systurnar settu jafnframt á laggirnar Orlofskort Thera Studio sem veitir konum í mömmu-/meðgönguþjálfun fríðindi hjá fjölbreyttum samstarfsaðilum.

„Við vitum að fæðingarorlofi fylgir oft talsverð tekjuskerðing og viljum styðja eins vel og við getum við mæðurnar okkar á þessu mikilvæga tímabili.“

Þær fóru meira að segja til Hollands til að skoða sérstakan meðgöngubekk sem síðan var sérsniðinn að þjónustu Thera Studio. Bekkurinn gerir barnshafandi konum kleift að liggja þægilega á maganum í sjúkraþjálfun og er, að þeirra vitneskju, sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi.

Meira en staður til að æfa

Samfélagið er ein af grunnstoðum Thera Studio. Systurnar vilja að konur geti myndað tengsl, deilt reynslu og stutt hver aðra.

„Það getur skipt sköpum, einkum í fæðingarorlofi, sem er dýrmætt en jafnframt krefjandi tímabil. Samfélagið nær þó lengra en til mömmuþjálfunarinnar. Við viljum að allar konur sem koma til okkar upplifi að þær tilheyri og hlakki til að mæta, hvort sem það er á æfingu, fræðslu, viðburð eða í sjúkraþjálfun.“

Fram undan eru fleiri fyrirlestrar, námskeið og viðburðir þar sem fagfólk miðlar þekkingu um fjölbreytt málefni tengd heilsu kvenna. Þjónustan verður áfram þróuð í samráði við konurnar sem sækja staðinn.

„Framtíðarsýn okkar er að Thera Studio verði leiðandi heilsusamfélag fyrir konur þar sem hreyfing, fræðsla, fagleg þjónusta og samfélag tengjast saman. Von okkar er að Thera Studio hjálpi konum að öðlast meiri þekkingu á eigin líkama, byggja upp styrk og færni og finna stuðning til að hlúa að heilsunni alla ævi.“

Skráning í Thera Aðild er alltaf opin og hægt er að velja um að æfa tvisvar í viku eða vera með ótakmarkaða aðild. Þær sem vilja kynnast starfseminni geta keypt vikupassa á kynningarverði og prófað alla tíma sem tilheyra Thera Aðild.

Nánari upplýsingar má finna á therastudio.is og á Instagram, @therastudio.is.

#fyrir #heilsusamfélag #konur #skapa #systur

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262935156d/systur-skapa-heilsusamfelag-fyrir-konur-a-ollum-aevi-skeidum

📰 Aðrar fréttir

Hannes Hólmsteinn leiðréttur: „Þetta er mjög óljóst og virðist byggt á misskilningi“
📅 17.09.2026 👁️ 1
Hannes Hólmsteinn leiðréttur: „Þetta er mjög óljóst og virðist byggt á misskilningi“
„Ef Kanada fær hagstæðan fríverslunarsamning við ESB, jafnvel aðgang að innri markaðnum, ættu þá Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein ekki að gera ...
Treble tryggir 2 milljarða króna fjármögnun til að sækja fram í hljóðtækni fyrir gervigreind
📅 17.09.2026 👁️ 1
Treble tryggir 2 milljarða króna fjármögnun til að sækja fram í hljóðtækni fyrir gervigreind
Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar sem meðal annars er nýtt við þróun gervigreindar og snjalltæk...
Líf Guggu breyttist föstudagskvöldið 1. október: „Við urðum öll fullorðin en líf okkar hinna hélt áfram eftir beinu brautinni. Hennar líf gerði það ekki“
📅 17.09.2026 👁️ 0
Líf Guggu breyttist föstudagskvöldið 1. október: „Við urðum öll fullorðin en líf okkar hinna hélt áfram eftir beinu brautinni. Hennar líf gerði það ekki“
„Við Gugga vorum fimmtán ára þegar líf okkar beggja breyttist. Hennar líf breyttist auðvitað á hátt sem er eiginlega ekki hægt að bera saman við neitt...
Telur stjórnvöld þurfa að horfast í augu við afleiðingarnar
📅 17.09.2026 👁️ 2
Telur stjórnvöld þurfa að horfast í augu við afleiðingarnar
Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar bindur vonir við að stjórnvöld grípi til aðgerða til aðstoðar við stóran hóp flóttamanna frá Úkraí...
Sænskur stórglæpon hand­samaður í Marokkó - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Sænskur stórglæpon hand­samaður í Marokkó - Vísir
Namdar, sem er 21 árs gamall, var klófestur í hafnarborginni Tangier í gær, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins. Alþjóðleg handtökuskipun v...
Vilja refsa kaupendum vændis líka
📅 17.09.2026 👁️ 1
Vilja refsa kaupendum vændis líka
Hópur sérfræðinga í Japan hvetur stjórnvöld til að breyta löggjöf landsins og gera það refsivert að kaupa vændi. Í dag er það ekki refsivert en áratug...
Aftur­kalla lóða­út­hlutun til tveggja trú­fé­laga - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Aftur­kalla lóða­út­hlutun til tveggja trú­fé­laga - Vísir
Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni var úthlutuð lóð við Mýrargötu árið 2008.  Eftir að teikningar lágu fyrir mótmæltu íbúar hæð hennar og stærð og varð s...
Ofbeldið heldur áfram gegn skólastúlkunum í Reykjanesbæ – Sögð hafa kastað sér fram af annarri hæð
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ofbeldið heldur áfram gegn skólastúlkunum í Reykjanesbæ – Sögð hafa kastað sér fram af annarri hæð
Frétt DV frá laugardeginum 5. september um linnulausar ofsóknir og einelti gagnvart þremur stúlkum, nýnemum í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, vakti mikla...
Próteinskammtur alltaf með í töskunni - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Próteinskammtur alltaf með í töskunni - Vísir
Fanney Dóra, sem heldur meðal annars úti hlaðvarpinu Ekkert plan, hefur notað vörurnar frá Bloom frá því í maí. Hún kynntist vörumerkinu fyrst á samfé...
Heat finally retreats across the Canary Islands as temperatures drop sharply
📅 17.09.2026 👁️ 2
Heat finally retreats across the Canary Islands as temperatures drop sharply
After several days of extreme heat, the Canary Islands are finally seeing a significant change in the weather today, Thursday, with temperatures falli...
EU announces plan to restrict social media access for children
📅 17.09.2026 👁️ 3
EU announces plan to restrict social media access for children
Under the plans, only children over 15 would be able to set up their own social media accounts.
Skorar á Kraft að jafna fram­lag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Skorar á Kraft að jafna fram­lag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa - Vísir
Macklemore sagði á miðvikudag að hann myndi gefa alla eina milljón dala sem hann átti að fá í tekjur fyrir þátttöku sína í Loop Tour Sheerans til sex ...
Karl konungur vísar lýsingum bróður Díönu á bug
📅 17.09.2026 👁️ 2
Karl konungur vísar lýsingum bróður Díönu á bug
Bók Charles Spencers jarls þar sem hann minnist systur sinnar, Díönu prinsessu, hefur vakið viðbrögð bresku konungshallarinnar þó að bókin sé ekki enn...
Brantham showed love and positivity in search for Noah Woods - reverend
📅 17.09.2026 👁️ 1
Brantham showed love and positivity in search for Noah Woods - reverend
The Reverend Chris Willis says the public reaction has been a "thread of positivity" in the sadness.
New website lets you check the latest water quality at Canary Islands beaches before you swim
📅 17.09.2026 👁️ 2
New website lets you check the latest water quality at Canary Islands beaches before you swim
Beachgoers in the Canary Islands now have a new way to check the latest available water-quality information before deciding where to swim. A Canary Is...
Hjartaknúsarinn játar að sögusagnirnar séu sannar
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hjartaknúsarinn játar að sögusagnirnar séu sannar
Leikarinn og leikstjórinn Tom Cruise segir að „sögusagnirnar séu sannar“ þegar hann fjallar um umdeilda hegðun sína á kvikmyndasetti.Tom Cruise hefur ...
Spreyttu þig á PISA-spurningunum - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Spreyttu þig á PISA-spurningunum - Vísir
Niðurstöður PISA-könnunarinnarsem lagðar voru fyrir nemendur í 10. bekk árið 2025 vöktu mikil viðbrögð enda hrakar íslenskum nemendum enn frekar þegar...
„Ég er hrein­lega mjög hrædd“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
„Ég er hrein­lega mjög hrædd“ - Vísir
„Þetta hefur ekki snúist um að fá nýjan forstjóra. Þetta hefur snúist um hvernig þau losuðu sig við hinn forstjórann sem var bara fullkomlega fær um a...
Þrír slógust á bensínstöð – Sérkennilegt atvik í bílakjallara
📅 17.09.2026 👁️ 2
Þrír slógust á bensínstöð – Sérkennilegt atvik í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls var 61 mál skráð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í g...
Borgin ætlar að taka moskulóðina til baka
📅 17.09.2026 👁️ 2
Borgin ætlar að taka moskulóðina til baka
Reykjavíkurborg hyggst afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við Suðurlandsbraut 76, þar sem til stóð að reisa mosku. Málið verður teki...
Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti - Vísir
Á vef stjórnarráðsins segir að Andri Snær hafi um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslags...
Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna - Vísir
Frumvarpið, sem hefur áður verið samþykkt af öldungadeildinni, felur í sér refsiaðgerðir gegn rússneskum aðilum og fyrirtækjum. Þar á meðal eru fyrirt...
Stýrivaxtahækkun skilaði sér hratt í dýrari óverðtryggðum lánum
📅 17.09.2026 👁️ 2
Stýrivaxtahækkun skilaði sér hratt í dýrari óverðtryggðum lánum
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans 21. ágúst leiddi til þess að bankarnir voru fljótir að hækka breytilega óverðtryggða vexti til samræmis. Aðrir vextir st...
Two injured in electric scooter accident in Gran Canaria
📅 17.09.2026 👁️ 2
Two injured in electric scooter accident in Gran Canaria
Two people have been injured following a collision involving electric scooters in Gran Canaria. According to reports from the Emergency Coordination C...
Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri - Vísir
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur áður lýst því yfir að hún vilji halda skólanum í Reykjavík og þá hefur bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnar...
Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn
📅 17.09.2026 👁️ 2
Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn
Landsréttur sneri á mánudag við gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manni sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn hefur játað að hafa ít...
Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun, föstudag, sé spáð norðvestan og vestan kalda vestantil á landinu, annars hægari breytilegri átt. Skýja...
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 4
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi - Vísir
Magaverkirnir hurfu. Í staðinn fékk ég svefntruflanir. Ég neitaði hins vegar að gefast upp. Kreatín hafði lengi notið vinsælda meðal íþróttafólks. Nú ...
Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi
📅 17.09.2026 👁️ 2
Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi
Tveggja pilta saknað frá heimilum sínum í Borgarnesi Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir upplýsingum um ferðir tveggja unglingspilta sem fóru frá heim...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar leiðir eða plastrúllubaggapólitík
📅 17.09.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar leiðir eða plastrúllubaggapólitík
Mynd Fyrir réttri viku var loks greint frá efni símta
Óvirkir lífeyrissjóðir og ótengdir fjárfestar
📅 17.09.2026 👁️ 3
Óvirkir lífeyrissjóðir og ótengdir fjárfestar
Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu.Hann er nú stærst...
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
📅 17.09.2026 👁️ 4
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta Skeif­an sker sig úr sem sá stað­ur í Reykja­vík sem borg­ar­bú­ar tengja oft­ast við nei­kvæða u...
Kaldi vestantil á landinu
📅 17.09.2026 👁️ 3
Kaldi vestantil á landinu
Það hvessir aðeins við suðvestur- og vesturströndina í dag. Heilt yfir verður þó frekar rólegt veður, sérstaklega fyrir austan þar sem getur þó dropað...
Hjólahvíslarinn og lög­reglan björguðu Latabæ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 3
Hjólahvíslarinn og lög­reglan björguðu Latabæ - Vísir
„Við komum á skrifstofuna í gærmorgun og sáum merki um mannaferðir og svo kom í ljós að það hafði ýmsu furðulegu verið stolið, eins og gömlu peysunni ...
Með lambúshettu að prófa sí­renur og gjallar­horn - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 4
Með lambúshettu að prófa sí­renur og gjallar­horn - Vísir
Lögregla fór á vettvang til að skakka leikinn og bæði mál eru í rannsókn. Tvö innbrotsmál komu til kasta lögreglu og var gerandi í öðru tilvikinu, sem...
Segir augljóst að stjórnsýslan hafi brugðist
📅 17.09.2026 👁️ 3
Segir augljóst að stjórnsýslan hafi brugðist
„Svona á ekki að geta gerst, hvað þá í svona stóru sveitarfélagi með svona stórt verkefni sem skiptir alla sem koma að málinu gríðarlega miklu máli,“ ...
Kosið að horfa fram hjá vandamálunum

„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 4
„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“ - Vísir
Magnús Jóhann er alltaf með mörg járn í eldinum hvort sem það eru eigin tónsmíðar, samstarf við aðra tónlistarmenn, aragrúi gigga eða skipulagning á t...
Lögreglan rannsakar tvenn slagsmál og bað mann um að hætta að þeyta gjallarhorn í bílakjallara
📅 17.09.2026 👁️ 3
Lögreglan rannsakar tvenn slagsmál og bað mann um að hætta að þeyta gjallarhorn í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvenn slagsmál, hvort í sínum borgarhlutanum. Í öðru tilfellinu áttust þrír menn við á bensínstöð í vesturhlu...
Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 3
Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB - Vísir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bauð í gærmorgun Kanada að verða aukaaðildarríki ESB. Mark Carney, forsætisráðherr...
Samþykkja frumvarp um refsiaðgerðir kennt við Lindsey Graham
📅 17.09.2026 👁️ 3
Samþykkja frumvarp um refsiaðgerðir kennt við Lindsey Graham
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Reuters segir 262 þingmenn hafa greitt atkvæði me...
Lög­reglan leitar tveggja drengja frá Borgar­nesi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 3
Lög­reglan leitar tveggja drengja frá Borgar­nesi - Vísir
Szymon er 165 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með stutt dökkt hár. Hann var klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og svarta skó. Cezary fór frá...
Gamlir íslenskir peningaseðlar seldust fyrir milljónir á uppboði
📅 17.09.2026 👁️ 4
Gamlir íslenskir peningaseðlar seldust fyrir milljónir á uppboði
Íslenskir peningaseðlar seldust fyrir háar fjárhæðir á uppboði sænska uppboðsfyrirtækisins Postiljonen í gær.Margir þeirra voru sagðir mjög sjaldgæfir...
Nepal floods: Climate change likely contributed to glacier collapse, study finds
📅 17.09.2026 👁️ 3
Nepal floods: Climate change likely contributed to glacier collapse, study finds
More than 1,400 people were killed and thousands remain missing following the deluge on 26 August.
Afghan inquiry into alleged SAS war crimes has already cost £58m, MOD figures show
📅 17.09.2026 👁️ 3
Afghan inquiry into alleged SAS war crimes has already cost £58m, MOD figures show
The inquiry has been running for more than three and a half years but has yet to publish any findings.
Palace in war of words with Earl Spencer over book's claim on Charles and Diana
📅 17.09.2026 👁️ 5
Palace in war of words with Earl Spencer over book's claim on Charles and Diana
The row threatens to overshadow a very crowded day for the royals - with the King and Princes William and Harry all attending events.
Austin Tice: Assad regime planned US journalist's kidnap for weeks, BBC finds
📅 17.09.2026 👁️ 3
Austin Tice: Assad regime planned US journalist's kidnap for weeks, BBC finds
Austin Tice’s abduction was approved by Syria’s former leader Bashar al-Assad, a source claims.
Hertfordshire boy, 13, is new voice of Thomas the Tank Engine
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hertfordshire boy, 13, is new voice of Thomas the Tank Engine
A new Thomas series also stars The Gentleman actor Henry Golding.
Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð
📅 17.09.2026 👁️ 4
Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð
Vísindamenn hafa staðfest áratugagamla kenningu um að grameðla eða Tyrannosaurus rex hefði verið með heitt blóð. Þegar steingervt fótspor eðlunnar fan...
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur piltum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur piltum
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur unglingspiltum, Cezary Kobiela sem er 15 ára og Szymon Suchecki 14 ára. Þeir fóru frá heimilum sínum í Borga...