Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins sóttu óformlegan fund á Kýpur í dag.
Á meðal ráðherranna á fundinum voru utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna; Eistlands, Lettlands og Litáens, sem eiga landamæri að Rússlandi. Þar hafa drónar úr átökum Rússa og Úkraínu ítrekað farið yfir landamæri þeirra.
Þeir eru sammála um að mikilvægt sé að Evrópa eigi sæti við borðið í samningaviðræðum um lok innrásarstríðsins. Áður en fulltrúi Evrópu verði valinn þurfi fyrst að auka þrýsting á Rússlandsforseta svo hann verði viljugur til þess að taka þátt í þeim. Þeir lýsa tortryggni í garð skilaboða frá rússneskum stjórnvöldum um að skipa sérstakan evrópskan sendifulltrúa fyrir viðræðurnar.
Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, telur forseta Rússlands ekki tilbúinn til að taka þátt í viðræðum af alvöru. Í staðinn auki hann þrýsting enn frekar á Úkraínu.
Artjoms Ursulskis, utanríkisráðherra Lettlands, segir að Evrópa verði að sitja við samningaborðið því viðræðurnar snúist ekki aðeins um stríðið milli Rússlands og Úkraínu „heldur um frið í Evrópu til lengri tíma litið“.
Kęstutis Budrys utanríkisráðherra Litáens segir að nú sé ekki rétti tíminn til að ræða hver leiði samningaviðræður. Á fundi ráðherranna í dag sé ekki verið að ræða nein nöfn eða sæti við samningaborðið heldur hvernig hægt sé að auka þrýsting á Rússland og jafnframt veita Úkraínu meiri stuðning svo landið geti staðist árásir Rússa og haldið áfram á leið sinni til sigurs.