„Það er rosalegur dofi í fólki og fólk er svona í biðstöðu. Það veit ekki hvernig því á að líða – það sækist eftir samveru með fjölskyldu. Þetta er svolítið sérkennilegt fyrir Íslending að skilja, hvernig þessar tilfinningar eru, vegna þess að við höfum enga manneskju sem við tengjumst við á þennan hátt.“
Þetta segir Valgeir Guðmundsson um viðbrögð Norðmanna við fregnum af slæmu ástandi Haralds fimmta Noregskonungs. Greint var frá því í morgun að heilsu hans konungsins hafi hrakað og ástand hans sé mjög alvarlegt.
Valgeir, sem er betur þekktur sem Valli Sport, er stjórnarformaður Pipar\TBWA. Hann starfar í Ósló og er með skrifstofu nálægt norsku konungshöllinni.
„Það eru ótrúlega miklar tilfinningar sem Norðmenn bera til kóngsins og það er búið að vera stöðugur straumur að höllinni – fólk með blóm.“
Blóm séu svo gott sem uppseld í öllum blómabúðum í Ósló. Fólk sé því farið að verða sér úti um blóm með öðrum leiðum og jafnvel að klippa þau úr garðinum sínum.
„Það er mikið magn af blómum sem liggja fyrir framan höllina og alls konar straumur af svona fjölbreyttu fólki, mikið af öldruðu fólki, fólk með börn og börnin með blómvendina. Þetta er viðkvæm stund, myndi ég segja, hjá Norðmönnum.“
„Norðmenn eru mjög stoltir af Haraldi“
Valgeir hefur starfað í Noregi í um fimm ár.
„Haraldur og Sonja konan hans hafa verið eins konar andlegir leiðtogar þjóðarinnar. Haraldur var til dæmis ofboðslegur brautryðjandi alþjóðlega í að tala um jafnrétti óháð kynhneigð, óháð litarhætti eða kyni, að allir fengju að vera með, fatlaðir og ófatlaðir. Norðmenn eru mjög stoltir af Haraldi og hvernig hann hefur talað alþjóðlega,“ segir Valgeir.
Í ofanálag sé Haraldur gamall íþróttamaður.
„Þetta er maður sem keppti á Ólympíuleikum fyrir hönd Noregs, þegar hann var prins, í siglingum og Sonja konan hans er líka mikill fjallagarpur. Gönguleiðir hérna um fjöll eru skírðar í höfuðið á henni. Þessi hugmynd um konunga og drottningar – það gerir það að verkum að fólk elst upp með leiðtogunum sínum og leiðtoginn er svona fastinn í lífi þess.“
Stjórnmálaflokkar og forsætisráðherrar koma og fara en konungar og drottningar ekki.
„Alltaf er þessi manneskja til staðar. Haraldur er búinn að vera síðan 1991 þegar að Ólafur dó 17. janúar. Hann vann hjörtu þjóðarinnar og núna er fólk áhyggjufullt yfir því hvað tekur við. Mette-Marit er mjög umdeild sem næsta drottning þó að Hákon maðurinn hennar sé vinsæll. Þannig þetta er bæði mikill söknuður sem er hjá fólki yfir því að Haraldur sé að kveðja en líka svona pínu togstreita yfir því hvað okkur á að finnast um konungsvaldið eftir það.“
Valgeir bendir á að norska konungsveldið hafi verið búið til með þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir rúmum hundrað árum. Það hafi í rauninni verið viðskiptaákvörðun.
„Nú er þriðji konungurinn, frá því að það var endurreist, að kveðja. Nú mun reyna svolítið á næsta konung hvort þetta sé komið til að vera eða hvort Norðmenn fari að hugsa um einhverjar breytingar. Ég hugsa að það verði mikil umræða þegar nokkrir mánuðir eru liðnir frá,“ segir Valgeir.
„Ég held að næstu mánuðir verði svona sorg og eftirvænting. Svo byrjar fólk að spyrja sig spurninga eftir svona fjóra til sex mánuði.“