„Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ - Vísir

„Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ - Vísir

„Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ - Vísir

Sigmundur greindi frá því í morgun á Facebook að í utanríkisráðuneytinu hefði verið ákveðið að ef fulltrúar í utanríkismálanefnd ætluðu að fá að skoða og sjá ákveðnar upplýsingar frá ráðuneytinu um ferlið sem snertir atkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fengju þau það ekki nema að þau fallist á að skoða þessar upplýsingar og gögnin í læstu leyniherbergi og að þau vitni ekki í gögnin á neinn hátt.

Sigmundur sagði í færslu á Facebook í morgun að nefndin ætti lagalegan rétt á þessum upplýsingum og gagnrýndi þetta fyrirkomulag.

„… ef einhver alvara væri á bak við öll orðin um „opið og gagnsætt ferli” ætti almenningur það auðvitað líka,“ sagði hann í færslu sinni og dró í efa að utanríkisráðherra myndi veita almenningi aðgang að helstu upplýsingum. 

Í Morgunblaðinu í dag var svo fjallað um það í dag að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefði rætt nýtt aðildarferli að Evrópusambandinu við kollega sína á Norðurlöndunum og framkvæmdastjórnarfólk sambandsins í Brussel áður en Alþingi var kallað saman eftir kosningar 2024 og þannig löngu áður en boðað var til þjóðaratkvæðagreiðslu í vor.

„Þarna er staðfest endanlega að þetta ferli allt saman hafi verið farið af stað áður en þing var komið saman eftir kosningar og það hefur verið búið að leggja á ráðin með hinum ýmsu aðilum innan Evrópusambandsins um þetta allt saman áður en að Alþingi Íslendinga og þjóðin fengu að vita af því,“ segir Sigmundur Davíð en rætt var við hann um bæði þessi mál í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hann bendir einnig á að Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hafi nýlega sagt að enginn hafi vitað af þessum áformum um þjóðaratkvæðagreiðsluna og því hafi ekki verið gert ráð fyrir henni í fjárlögum síðasta árs.

Sigmundur segir þó hafa verið fjallað um þessi áform í fjölmiðlum í Brussel og svo hafi skyndilega verið boðað til blaðamannafundar hér um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst.

„Málið er kynnt áður en það hefur verið kynnt í þingflokkum stjórnarliðsins, ekki sett í samráðsgátt stjórnvalda, heldur bara keyrt af stað og það höfum við aldeilis fengið að upplifa í utanríkismálanefndinni. Það á bara að keyra þetta áfram með sem minnstri umræðu og minnstum upplýsingum,“ segir Sigmundur.

Alltaf kosningamál Viðreisnar

Auðun Georg Ólafsson þáttastjórnandi Reykjavík síðdegis, benti þá á að Evrópusambandið hafi alltaf verið eitt helsta kosningamál Viðreisnar og spyr Sigmund hvort það komi í raun og veru á óvart að það sé verið að undirbúa jarðveginn með þessum hætti.

„Það kom svo sem ekkert á óvart að Þorgerður sérstaklega skyldi leggja svona mikla áherslu á þetta frá upphafi en fyrr má nú vera. Þetta var eiginlega fyrsta embættisverk hennar, allavega sem komst í fréttir, að drífa sig beint til Brussel að ræða málin.“

Hann segir talað um þetta í stjórnarsáttmála og þá gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslan yrði 2027 en Sigmundur segir það skrítna við þetta allt sé að þegar grunsemdir kviknuðu um að eitthvað væri farið af stað þá hafi verið þrætt fyrir það. Hann hafi til dæmis verið með Þorgerði í Silfrinu þar sem hann talaði um „baktjaldamakk í Brussel“ og hún hafi þar virst sár og reið yfir því að hann væri að gefa slíkt í skyn.

„En nú er þetta allt saman búið að koma á daginn og hafa greinilega verið fjölmargir fundir þarna þar sem þetta hefur verið rætt. Við vissum svo sem að hún hefði farið margar ferðir til Brussel en við vissum ekki hversu mikið hefði verið fundað um þetta.“

Fá bara að skoða gögn í leyniherbergi

Sigmundur segir að það sem kom svo í ljós í utanríkismálanefnd í dag um að nefndin fái ekki frekari upplýsingar um hvað hafi farið fram á þessum fundum, afstöðu Evrópusambandsins til framhaldsviðræðnanna og hvað fór á milli íslenskra stjórnvalda og ESB, nema í lokuðu leyniherbergi. Hann segir það sýna að við séum komin aftur á „Icesave-tíma“.

„Það segir okkur að við erum bara komin aftur í Icesave-tímann, allavega í mínum huga, því ég man síðast eftir svona tilburðum þegar var boðið upp á það eftir mikla gagnrýni að þingmenn fengju að skoða Icesave-samningana einir í leyniherberginu svokallaða sem menn höfðu ekki haft neinar forsendur til að leggja mat á við þær aðstæður. En þá líka máttu menn ekki tjá sig um innihaldið.“

Spurður hvað eigi að skoða í leyniherberginu segir Sigmundur að hann geti aðeins ímyndað sér það því það megi ekki upplýsa um það.

„Ég ímynda mér að stjórnvöld hér vilji ekki raska þeirri mynd sem reynt er að draga upp um það að aðildarviðræður, umsókn um aðild að Evrópusambandinu og viðræður snúast ekki um neitt nema að kanna hvað þeir bjóða okkur. Sem er náttúrulega fáránleg nálgun á Evrópusambandið og stjórnvöldum hefur hvergi dottið slíkt í hug nokkurs staðar annars staðar. Umsókn um aðild að Evrópusambandinu, eins og ESB útskýrir sjálft, snýst um það að umsóknin er um að ríkið vilji ganga inn og ætli að aðlaga sig,“ segir Sigmundur Davíð.

Hann segir furðulegt að Þorgerður Katrín eigi að fá umboð til framhaldsviðræðna án þess að almenningur fái að vita fyrirfram hvað í því felst. Feneyjarnefndin hafi bent á mikilvægi þess fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna að fólk viti hvað það hefði í för með sér að segja já. Nefndin hafi lagt til að haft yrði samband beint við Evrópusambandið en öllum slíkum beiðnum hafi verið hafnað.

„Við megum ekki spyrja Evrópusambandið um hvernig málið horfir við því og við megum ekki fá gögn frá utanríkisráðuneyti Íslands að hluta til, nema ef við lofum að tala ekki um innihaldið og skoðum þau í lokuðu rými.“

Hann segir óhjákvæmilegt að breyta spurningunni sem lögð verður fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur lagt til breytingar á tillögu utanríkisráðherra að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið og að svarmöguleikarnir verði einfalt „Já“ eða „Nei“.

„Þetta er nú eitt af því sem við bentum á strax í upphafi og vorum sökuð um úrtölur fyrir vikið og af hverju við vildum ekki bara leyfa þjóðinni að ráða, allir þessir frasar, þessar umbúðir. En spurningin var náttúrulega alveg meingölluð, byggði á röngum forsendum og var villandi. Þannig að ég held að það sé nú óhætt að gera ráð fyrir því að meirihlutinn muni vilja laga spurninguna, en nákvæmlega hvernig hún verður orðuð, það á eftir að koma í ljós,“ segir hann.

Nenni enginn að tala um pólitík á sumrin

Hann segir líklegt að sumarið verði litað af umræðum um atkvæðagreiðsluna og Evrópusambandið.

„Óhjákvæmilega komast menn ekki hjá einhverri ESB-umræðu. Hins vegar eru mikil takmörk fyrir því hversu fjörug umræða um pólitík verður á sumrin á Íslandi. Nú er ég búinn að vera í þessum bransa í 18 sumur eða svo og það er sama hvað menn reyna, í júlí hafa Íslendingar bara engan áhuga á að spá í pólitík, og í rauninni ekki ágúst heldur.“

Hann segir tímasetninguna því mjög undarlega.

„Það er eins og það sé bara allt gert til að forðast umræðu um innihald málsins og reyna bara að keyra það áfram á grundvelli einhverra umbúða. Svo þegar umboðið er komið þá stendur til að fara með það að vild.“

#aftur #bara #erum #komin #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262879385d/-vid-erum-bara-komin-aftur-i-icesave-timann-

📰 Aðrar fréttir

Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
📅 29.06.2026 👁️ 1
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
The blast was caused by an explosive device which appeared to contain bolts and pellets, the head of Monaco's government said.