Varasamur vendipunktur fyrir venjulegt fólk

Varasamur vendipunktur fyrir venjulegt fólk

Varasamur vendipunktur fyrir venjulegt fólk

Varasamur vendipunktur fyrir venjulegt fólk

Mörg merki eru komin fram um afdrifaríkar og örar breytingar sem munu hafa fordæmalaus áhrif á okkur öll, til góðs eða ills.

Hvort þær munu verða útópískar eða dystópískar veltur á því hvort farið verði yfir vendipunkt valdasamþjöppunar.

Mælikvarðinn til að fylgjast með er ekki olíuverð, hagvöxtur, vextir eða hlutabréfaverð, heldur virði manneskjunnar. 

Eins og fjallað hefur verið um, meðal annars í New York Times í síðasta mánuði, er vaxandi meðvitund um að við erum óundirbúin undir áhrif gervigreindar á atvinnumarkað og samfélagið. Þess mikilvægara er að fylgjast með merkjunum.

Hagfræðilegt virði fólks minnkar

„Þörfin“ fyrir manneskjur þverr með innreið gervigreindar og síðar vélmenna, sem eru nú að taka stórstígum framförum.

Í síðasta mánuði náði vélmenni að slá hraðasta tíma manneskju í hálfmaraþoni í Peking í Kína og bæta tímann um tæpar tvær klukkustundir frá árinu áður. 

Eftir því sem minni þörf verður fyrir mannfólk eru líkur á að ábati myndist í hagkerfinu almennt, en óljóst er hversu mikið hann dreifist eftir því sem hann skalast upp. 

Fyrirsjáanlega mun uppgangur gervigreindar þannig styrkja stöðu fjársterkra aðila, sem eiga og reka „framleiðslutækin“, eins og fræðimanninum Karl Marx var tíðrætt um, á meðan launþegar glata lykilstöðu sinni.

Í vikunni tilkynnti Arion banki um að hagnaður á fyrsta ársfjórðungi hefði verið milljarði meiri en í fyrra, á metári. Þó svo að sjálfvirknivæðing sé í raun ekki langt komin miðað við möguleikana eru fyrirtæki á Íslandi í miklum hagnaði.

Íslandsbanki sagðist í lok apríl ætla að spara milljarð á ári í launakostnað með því að fækka um 50 starfsmenn.

Svo mikill hefur hagnaður stórra verslanakeðja og banka verið á Íslandi síðustu ár að formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, Bolli Héðinsson, efaðist um að lækkun kostnaðar við sjálfvirknivæðingu hefði raunverulega skilað sér í lægra vöruverði og að kostnaðarlækkun banka hefði skilað sér til viðskiptavina með lægri álögum. 

Eigendur fyrirtækjanna eru því í lykilstöðu á meðan launþegar og neytendur geta orðið fyrir tekjurýrnun og uppskorið á móti takmarkaðan ábata, sérstaklega í fákeppnisumhverfi.

Áhrif gervigreindar á atvinnumarkað hafa ekki sýnt sig að fullu. Atvinnuleysi á Íslandi er sögulega hátt, 6,3 prósent, á meðan atvinnuleysið er að meðaltali 6 prósent í Evrópusambandinu. 

Gervigreind getur á móti valdeflt venjulegt fólk og upplýst það. Hún getur valdið framförum í heilbrigðisvísindum og kostnaðarlækkunum í heilbrigðiskerfinu.

En áhrif framfaranna fyrir okkur öll eru skilyrt því að manneskjur haldi virði sínu. Gervigreind og róbótar eru tól sem beita má gegn fólki eða því til stuðnings.

Stóra áhættan

Forstjóri JP Morgan Chase-bankans í New York, Jamie Dimon, segist  í viðtali við danska blaðið Børsen, sem Viðskiptablaðið þýddi og birti, ekki hafa mestar áhyggjur af olíuverði, verðbólgu, gervigreind eða vaxandi áhrifum Kína.

„Allt sem er að gerast í heiminum, stríðið í Úkraínu, stríðið í Íran, við­skipta­deilur og of miklar opin­berar skuldir, snýst í raun um stefnu hins frjálsa og lýðræðis­lega heims og hvers konar heim við viljum hafa eftir 20 eða 30 ár. Það eru raun­veru­legu áhyggjur mínar, ekki hag­kerfið eða hluta­bréfa­markaðurinn á næsta ári,“ sagði hann.

Fall mannhelginnar

„Við Munum Finna Þig og Við Munum Drepa Þig,“ ítrekar Donald Trump Bandaríkjaforseti í nýrri stefnu um aðgerðir gegn hryðjuverkum sem kynnt var í gær.

Í orði hefur Trump innleitt umræðu um að drepa eða taka af lífi alls kyns meinta andstæðinga sína og Bandaríkjanna, en sérstaklega erlenda. Hann hefur fylgt þessu eftir með því að drepa fólk.

Í hryðjuverkastefnunni talar hann til þeirra sem „skaða Bandaríkjamenn, eða ætla sér að skaða Bandaríkjamenn“.

Trump hefur þanið út skilgreininguna á hryðjuverkamönnum og hefur látið drepa grunaða fíkniefnasmyglara í nánast viku hverri á Karíbahafi og Kyrrahafi frá síðasta hausti. Það er brot á bandarískum lögum og alþjóðalögum, en Trump skilgreinir þá upp á nýtt sem óvinahermenn í árás.

Trump hefur unnið að því að víkka út skilgreininguna á innlendum hryðjuverkamönnum. Þrátt fyrir að frá 2001 hafi hægriöfgamenn verið ábyrgir fyrir 75 til 80 prósent af morðum í hryðjuverkaárásum í Bandaríkjunum, er nú eingöngu talað um „ofbeldisfulla öfgavinstrimenn, þar á meðal anarkista og andfasista“ í stefnu Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum. 

Andlitsgreiningartækni er notuð til þess að fylgjast með mótmælendum í raunheimum og á samfélagsmiðlum.

Aldrei áður hefur eftirlit og valdbeiting verið jafnauðveld í framfylgd fyrir þá sem eru leiðandi í tækninni. Bandaríkin gátu hirt upp þjóðarleiðtoga Venesúela án þess að missa nokkurn hermann í byrjun ársins. „Velkomin í 2026,“ sagði stríðsmálaráðherrann.

Næst náðu þau, í samstarfi við Ísrael, sem hefur fengið grænt ljós frá Trump til að eyða byggðum og tugþúsundum lífa í Palestínu og Líbanon, að drepa þjóðarleiðtoga Írans og fjölmarga aðra. Síðar hafa þau hótað að taka Kúbu og „eignast“ Grænland.

Virði mannslífsins í augum öflugasta herveldis og lýðræðisríkis heimsins hefur fallið á sama tíma og valdbeitingargetan eykst.

Þetta speglast í drögum Trumps að fjárlögum sem hann lagði fyrir þingið nýlega. Trump vill skera niður félagslega aðstoð og auka útgjöld til hermála um 42 prósent, til þess að hámarka getu sína og Bandaríkjanna til að beita aðra valdi og yfirgangi, í krafti þeirrar stefnu að setja sjálfa sig í fyrsta sæti á kostnað annarra.

Spurningin er hvað gerist við það að virði vinnuframlags og geta til mótlætis hrynja á sama tíma? Önnur spurning er hverjar verða afleiðingar þess að mennska eigi ekki lengur nauðsynlega aðkomu að ákvörðunum og aðgerðum.

Drápslínan

Við tökum því sem gefnum hlut að ástand verði með svipuðum hætti og það hefur verið, en nú gætu eðlisbreytingar verið í nánd.

Áður voru áhyggjur af upprisu Kína, sem nú er orðið leiðandi í framleiðslu og í þróun vélmenna. Síðasta árið hefur þar verið rætt um mjóa línu á milli lífs og dauða í Bandaríkjunum, sem kallað er „kill line“ eftir síðasta lífsmarkinu í tölvuleikjum þegar leikmaður er í raun dauðadæmdur. Hugmyndin gengur út á að í Kína sé félagslegt öryggisnet, en í Bandaríkjunum sé fólk yfirleitt einu skrefi frá því að falla í hörmulega fátæktargildru.

Á sögulegum skala voru eignalausir Íslendingar fastir í vistarbandi allt þar til tiltölulega nýlega. Frelsi til búsetu var ekki innleitt að fullu fyrr en undir lok 19. aldarinnar, vegna metinnar hagrænnar þarfar á því að takmarka tilflutning vinnuafls.

Hugsanlega eru þau örlög að verða óþarfur enn verri en ófrelsi á forsendum gagnsemi, en það veltur á því hver heldur um völdin.

TækniforkólfarMark Zuckerberg, aðaleigandi Facebook, Instagram og Whatsapp, Jeff Bezos, aðaleigandi Amazon, Sundar Pichai, forstjóri Google/Alphabet, og Elon Musk, aðaleigandi Tesla, SpaceX og X, mættu í innsetningarathöfn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, mánudaginn 20. janúar 2025.

Martraðarútgáfan

Dystópían, eða Martraðarlandið, verður að veruleika ef viðvarandi keppni um land og auðlindir með fjöldaframleiddum, sjálfstýrðum vígvélum, líkt og er yfirstandandi í Úkraínu og Palestínu, dreifist út og nær til Grænlands, sem setur Ísland við mögulega víglínu. Eftir því sem lýðræði veikist telst þetta líklegra.

Þetta getur gerst með því að mótlæti almennings verði vonlaust, vegna þess að einstaklingar eiga ekki roð í eftirlitskerfi gervigreindarinnar og sjálfvirknivædda valdbeitingu sem er án afleiðinga fyrir valdbeitandann.

Munurinn á þessu tvennu getur legið í einföldum vendipunkti, sem gæti átt sér stað fljótlega. 

Fyrir Íslendinga getur munurinn legið í því hvort Bandaríkin þróist yfir í einræðissinnað útþensluveldi, eða reynist eiga afturkvæmt frá farvegi sínum undir Donald Trump í átt að hervæðingu og valdbeitingu.

Íslenska dystópían

Síðustu ár hefur íslenskt hagkerfi fylgt blindri vaxtarstefnu. Mikil uppbygging hefur orðið í greinum með lágum launum, sem hefur leitt af sér mikinn innflutning fólks án hagvaxtar. Launahækkanir og verðbólga hafa gengið á víxl. Þrýstingurinn hækkaði fasteignaverð og aukið álag varð á innviði og náttúruna, sem dregur að hluta úr almannagæðum Íslendinga, á meðan annað bætir þau á móti.

Leiðin til dystópíu er að íslenskir launþegar missi samningsstöðu sína um endurgjald fyrir vinnuframlag, vegna þess að það verði úrelt eða í offramboði, á sama tíma og eigendur fyrirtækja og lands hagnast meira á lægri kostnaði, jafnvel samhliða framsali og skerðingu almannagæða.

Það er ekki útilokað að ásetningur sumra hægrisinnaðra stjórnmálamanna um sölu opinberra orkufyrirtækja verði að veruleika til að rýma fyrir skattalækkunum fjársterkra og einkarekin orkuver verði í auknum mæli reist til að knýja gervigreindarver. Þessi leið getur verið kosin og valin af Íslendingum, eða þvinguð fram með yfirtöku eða afarkostum eftir afnám alþjóðalaga.

Ef ábatinn og valdið verður í höndum erlendra aðila, sem vilja ná arði út úr landinu, eða auðmanna, sem eru ótengdir almannahagsmunum, færumst við nær martraðarútgáfunni.

Blind vaxtarstefna sem gengur út á að skapa hagvöxt með mannfjölgun, „brjóta land“, skipta ósnortinni náttúru út fyrir mannvirki og skipta út fjallasýn fyrir vindmylluver, og skerða almannagæði með óheftum tollum á ferðir fólks og viðkomu um landið.

Fólk sem missir bæði forsendur til lífsviðurværis og almannagæði landsins, sem verður leikvöllur fyrir ríka útlendinga, á meðan Íslendingar stafla sér upp í ódýrum og einföldum blokkum.

Íslensk útópía gervigreindar

Hár launakostnaður á Íslandi, mannfæð og þekkingarskortur hafa oft hamlað uppbyggingu og takmarkað möguleika. 

Með sanngjarnri dreifingu ábata af gervigreind og sjálfvirknivæðingu, meðal annars í gegnum eign lífeyrissjóða í stærstu fyrirtækjum og aðild almennings að tekjusköpun með auðlindum, getur sjálfvirknivæðingin vegið upp helsta veikleikann.

Sjálfvirknivæðingin getur að auki gert fólki kleift að vera lengur í vinnu og taka skynsamlegri ákvarðanir um heilsufar, fjármál og fleira. Þær geta hagrætt í rekstri ríkisins og auðveldað ýmsar aðgerðir.

Róbótar geta leyst vanda launakostnaðar í ræktun matvæla og gert Ísland sjálfbærara og aukið fæðuöryggi. Við getum nýtt orkuna og fjármagn lífeyrissjóða til að fjárfesta í getu til að stunda iðnað á hærra tæknistigi, allt eftir því hvað aðfangakeðjur leyfa.

Við teljum okkur síður knúin til að missa kalda og heita vatnið inn í ævintýraverkefni sem eru hluti af stöðugri útþensluþörf. Fjármagn getur færst meira yfir í verkefni sem skapa samfélagslegan arð til lengri tíma og eru á forsendum samfélagsins frekar en á kostnað þess.

Gervigreind og sjálfvirknivæðing getur vegið upp kostnað í heilbrigðiskerfinu og dregið úr áhrifum manneklu, auk þess að bæta kjör starfsfólksins og gæði þjónustunnar.

Þegar minni þörf verður á stöðugum innflutningi fólks til að fylla láglaunastörf eða bæta fyrir lækkandi fæðingartíðni getur álagið á fasteignamarkaðinn minnkað, þörfin fyrir að byggja stór fjölbýlishús í úthverfum yfirgnæfir ekki skipulag og ásýnd borgarinnar, og vextir geta lækkað. Umferðarhnútarnir geta raknað upp með tímanum þegar samfélagið fær svigrúm til að byggja upp innviði og almenningssamgöngur, sem geta verið sjálfstýrðar, í stað stöðugrar útþenslu án tilgangs eða framfara.

Allt þetta veltur þó á því að Ísland haldi fullveldi sínu og almenningur aðild sinni að valdinu. Hvort sjálfræðið sé betur tryggt með því að venda okkur að nánara samstarfi við Evrópusambandið og Evrópuþjóðir, í ófullkomnu samfélagi við aðrar þjóðir, eða tilraunum til bandalags við Bandaríkin, með getu sinni og hamskiptum, er stóra spurning íslenskra stjórnmála á næstu árum.

#fyrir #fólk #varasamur #vendipunktur #venjulegt


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26585/varasamur-timapunktur-fyrir-manneskjur/

📰 Aðrar fréttir

Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
📅 29.06.2026 👁️ 1
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
The blast was caused by an explosive device which appeared to contain bolts and pellets, the head of Monaco's government said.