Útivist og iðnaður: Ferðasvæði höfuðborgarbúa í hættu
Þrátt fyrir mikilvægi útivistar fyrir líkama og sál hefur verið gengið á ýmsa staði sem íbúar höfuðborgarsvæðisins sækja. Heimildin skoðaði útivistarsvæði í nágrenni höfuðstaðarins sem hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir námuvinnslu, borholupöllum og fyrirhuguðum vindorkugörðum.
„Það er manneskjum eðlislægt að vera úti og njóta útivistar, anda að sér fersku og súrefnisríku lofti, það hreinsar hugann,“ var eitt sinn haft eftir Erlingi Jóhannssyni, prófessor í íþrótta- og heilsufræðum við Háskóla Íslands.
Síðustu ár hafa ýmis sveitarfélög lagt áherslu á hreyfingu, heilbrigt líf og umhverfi. Til dæmis opnuðu Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, vefinn Út um allt í fyrra með það markmið að gera útivistarmöguleika sýnilegri fyrir íbúa og gesti. „Við bindum miklar vonir við þennan vef sem er eitt af þessum sameiginlegu verkefnum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem gera svæðið í heild enn betra og skemmtilegra til búsetu,“ sagði Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH. Þá eru sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins sem og fjöldi sveitarfélaga í kring, á borð við Ölfus, Grímsnes- og Grafningshrepp og Akranes, þátttakendur í verkefninu Heilsueflandi samfélag á vegum Embættis landlæknis. Einn af gátlistum verkefnisins snýr að vellíðan með hreyfingu og útiveru.
Þrátt fyrir mikilvægi …