Þórður Snær Júlíusson fjallaði um ljósmynd úr síma Páls Steingrímssonar innan við þremur vikum eftir að skipstjóranum var byrlað og síma hans stolið.
Í síma Páls Steingrímssonar skipstjóra var meðal annars ljósmynd af blaðamönnum RÚV og Kjarnans saman á kvöldstund úti í íslenskri náttúru. Páll hafði fengið myndina senda og skrifað athugasemd inn á hana.
Vorið 2021 var Páli byrlað og síma hans stolið. Innan við þremur vikum síðar fjallaði Þórður Snær Júlíusson, þáverandi ritstjóri Kjarnans, um sömu ljósmynd og athugasemdir Páls við hana, í fréttaskýringu sem birtist á Kjarnanum 22. maí 2021.
Þórður Snær fjallaði um myndina
Í fréttaskýringunni skrifaði Þórður Snær:
„Þá er mynd sem tekin er af samfélagsmiðli þar sem hópur fjölmiðlafólks sem starfar á mismunandi miðlum situr saman á sumarkvöldi að finna í gögnunum ásamt greiningu á fólkinu og hvernig megi tortryggja tengsl þess.“
Gögnin sem Þórður Snær vísar til eru þau sem lágu til grundvallar fréttum um svokallaða skæruliðadeild Samherja.
Samkvæmt upplýsingum sem komið hafa fram hafði Páll sent ljósmyndina til Ingunnar Björnsdóttur haustið 2020. Ingunn birti skjáskot af þeim samskiptum á Facebook-síðu sinni í vikunni.

Vekur spurningar um uppruna upplýsinganna
Blaðamenn sem hafa verið orðaðir við málið hafa hingað til neitað allri aðild að byrlunar- og símamálinu og sagst ekki hafa haft undir höndum efni úr síma Páls Steingrímssonar.
Umfjöllun Kjarnans frá maí 2021 vekur hins vegar spurningar um hvernig vitneskja um ljósmyndina og umfjöllun um hana varð hluti af fréttaskýringu miðilsins skömmu eftir að skipstjóranum var byrlað og síma hans stolið.
Ljósmyndin er hér að ofan. Fremst á myndinni er Sunna Valgerðardóttir á RÚV. Til vinstri við hana eru Bergsteinn Sigurðsson á RÚV, Helgi Seljan á RÚV, Þórunn Bogadóttir sem starfað hefur bæði hjá RÚV og Kjarnanum, Fanney Birna Jónsdóttir sem einnig hefur starfað hjá báðum miðlum, og Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi ritstjóri Kjarnans og nú framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.