Aukaþingfundur verður á Alþingi í dag þar sem þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæði um ESB-viðræður er á dagskrá. Dagurinn var áður ætlaður til nefndastarfa, sem færast þess í stað yfir á laugardag. Útlit er fyrir að umræðurnar klárist í dag.
Breytingin var gerð á dagskrá þingsins eftir fund í forsætisnefnd í gærkvöld og þingfundur hefst klukkan hálf ellefu í dag. Fjórir þingmenn Miðflokksins eru á mælendaskrá um þingsályktunartillöguna með sjöttu til fimmtándu ræður sínar um málið.
Ljúka þarf seinni umræðu um þingsályktunartillöguna í síðasta lagi í dag og meirihluti þingmanna að samþykkja hana svo unnt verði að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst líkt og stjórnarliðar leggja til. Minnihluti utanríkisnefndar hefur lagt til að hún verði 17. október.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir við fréttastofu að fyrir liggi að ljúka þurfi umræðunni í dag og segir að útlit sé fyrir að það náist.
Þingfundi lauk klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt eftir að þingmenn Miðflokksins ræddu sín á milli um tillöguna og aðildarumsóknina. Þingmenn hinna stjórnarandstöðuflokkanna, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, segjast hafa lokið máli sínu.
Rétt fyrir miðnætti í gær var lögð fram beiðni um að þingmenn, aðrir en þeir sem sitja í utanríkismálanefnd Alþingis fengju aðgang að trúnaðargögnum sem nefndinni hafi borist í sambandi við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þórunn segir að þetta hafi verið afgreitt í gær af hálfu forseta og aðgangurinn veittur. Nú geta því þingmenn utan utanríkismálanefndar kynnt sér gögnin, en enn ríkir trúnaðar um þau.