Fyrsti stöðuvörður Hafnarfjarðarbæjar kom til starfa í mars sl. eftir að stofnun bílastæðasjóðs var samþykkt um mitt síðasta ár.
Með stofnun sjóðsins er lögð meiri áhersla en áður á aukið umferðaröryggi og getu til að bregðast við ábendingum frá íbúum um bifreiðar sem lagt hefur verið með ólögmætum hætti. Þá mun bílastæðasjóður einnig fylgjast grannt með númerslausum og yfirgefnum ökutækjum í almenningi, en það er vaxandi vandamál í Hafnarfirði og víðar á höfuðborgarsvæðinu.
Þótt stöðuvörður Hafnarfjarðar sé einungis einn um þessar mundir hafa íbúar þar margir tekið eftir vinnu hans að undanförnu enda hefur vörðurinn verið afar iðinn við að vara brotlega ökumenn við athæfi sínu. Þannig hefur vörðurinn þegar útdeilt hátt í 300 viðvörunum.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.