Hundurinn Bella var í göngutúr með eiganda sínum á fimmtudaginn þegar laus hundur réðst á hana. Bella slapp frá eiganda í kjölfarið og hljóp í hraunið fyrir ofan álverið í Hafnarfirði til að sleppa frá hinum hundinum.
Dýrfinna lýsir eftir Bellu og eru þeir sem hafa séð til hennar beðnir um að hafa samband við Lilju Dóru í síma 898-3226 eða Jónas í síma 897-4490. Tekið er fram að Bella gæti verið slösuð. Samkvæmt Dýrfinnu geta allir aðstoðað við leitina keyrandi, gangandi eða með dróna. Svæðið þar sem hennar er leitað er stórt og erfitt yfirferðar.
Þeir sem sjá til Bellu eru beðnir um að elta hana ekki heldur hringja í uppgefin símanúmer. Bella er af tegundinni Shetland Sheepdog og hún er með bláan taum á eftir sér. Hún slapp frá eiganda sínum um klukkan 15:30 á fimmtudag.