Fjöldi innlendra kortafærslna nær tvöfaldaðist á Akureyri á bæjarhátíðinni Einni með öllu um verslunarmannahelgina og báru veitingahús, kaffihús og barir veltuna einna helst uppi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Teya, sem bar veltuna saman við kortaveltu um helgar almennt í júlí.
Þar segir að innlendum kortafærslum á Akureyri hafi fjölgað um 95% um verslunarmannahelgina og veltan hafi aukist um 68%. Á sama tíma fjölgaði kortafærslum í Reykjavík um 14%, þar sem hátíðin Innipúkinn var haldin.
Stærsta verslunarmannahelgi frá upphafi
„Hvernig sem á það er litið var þetta stærsta verslunarmannahelgi Akureyrar sem við getum séð í okkar gögnum frá upphafi,“ segir í tilkynningu Teya.
Fjöldi nýrra korta, það er að segja sem voru ekki notuð á Akureyri undanfarnar átta vikur, jókst um 91%.
Kvöld og nætur voru annasamasti tíminn og frá miðnætti til klukkan fjögur að nóttu fóru sexfalt fleiri færslur í gegn hverja nótt en um venjulega helgi.
Margar smærri færslur einkenndu veltuna sem mátti að miklu leyti rekja til viðskipta á veitingastöðum, kaffihúsum, börum og skyndibitastöðum. Velta hjá slíkum fyrirtækjum jókst um 72% en færslurnar lækkuðu um 13%.