Tveir unglingar á mótorhjóli voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á rússneska héraðið Belgorod.
Héraðsstjórinn segir í færslu á Telegram að vísvitandi hafi verið ráðist á ungu mennina sem létust umsvifalaust af sárum sínum. Rússar hafa frá upphafi innrásarstríðsins gert nánast linnulausar árásir á innviði Úkraínu.
Úkraínsk stjórnvöld segja hefndaraðgerðum fyrst og fremst beint að orkuinnviðum Rússlands en þarlend stjórnvöld hafa ítrekað sakað Úkraínuher um að gera mannskæðar árásir á almenna borgara. Friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjanna hafa frestast vegna þátttöku þeirra í stríðinu gegn Íran.