Tveir ráðherrar hafa yfirgefið stjórn Starmers

Tveir ráðherrar hafa yfirgefið stjórn Starmers

Jess Phillips hefur sagt af sér sem ráðherra málaflokks sem verndar viðkvæma hópa, sérstaklega konur og börn, gegn misnotkun og ofbeldi.

Í yfirlýsingu sakar Phillips Keir Starmer um að standa í vegi fyrir löggjöf sem hefði komið í veg fyrir að börn taki nektarmyndir á síma sína. Hún segir Starmer góðan og vel meinandi mann sem sé þó ekki nógu sterkur leiðtogi.

Hún er annar ráðherrann til að segja af sér í dag, en í frétt Guardiansegir að afsögn Phillips megi sjá sem hluta af skipulagðri herferð stuðningsmanna Wes Streeting heilbrigðisráðherra til að knýja á um leiðtogakjör í Verkamannaflokknum.

81 af þingmönnum Verkamannaflokksins hafa nú opinberlega lýst því yfir að þeir vilji að Starmer annaðhvort fari strax úr embætti eða leggi fram tímaáætlun um brottför sína. Fyrr í morgun var talan um 70 þingmenn og því ljóst að þrýstingur á hann hefur aukist eftir því sem liðið hefur á daginn.

Síðasti þingmaðurinn til að láta í ljós þessa skoðun sína er Lizzi Collinge sem segir í yfirlýsingu að það sé ljóst að forsætisráðherrann hafi misst alla tiltrú landsmanna.

Það þurfa einmitt 81 þingmaður að samþykkja kröfu um leiðtogakjör innan Verkamannaflokksins til að það geti farið fram.

Ferlið yrði þannig að einhver þingmanna flokksins myndi skora á leiðtogann, bjóða sig fram gegn honum, svo þyrfti undirskriftir 81 þingmanns til að efnt yrði til leiðtogakjörs. Enn sem komið er hefur enginn skorað formlega á leiðtoga flokksins, Starmer.

Kötturinn Larry sem býr í Downingstræti 10 hefur kíkt út í morgun og blandað geði við nokkra af þeim fjölmörgu fjölmiðlamönnum sem hafa verið þar og beðið tíðinda. Larry virðist hinn allra rólegasti þó að það sé titringur innan ríkisstjórnarinnar sem fundaði í Downingstræti í morgun.

Síðasta áratuginn hafa verið sex forsætisráðherrar og sumir segja að Larry hafi á þessum tíma verið tákn um stöðugleika í húsinu enda ekki á förum. Larry hefur búið í Downingstræti síðan 2011 og kom þangað fyrst í tíð Davids Camerons. Áður bjó Larry í dýraathvarfi.

Þegar rætt er um hver ætti að taka við af Starmer sem leiðtogi Verkamannaflokksins kemur nafn Andy Burnhams stundum upp. Hann er borgarstjóri Manchester og sá sem margir sjá sem vænlegasta kostinn til að leiða flokkinn fari Starmer frá. Staðan er hins vegar sú að Burnham á ekki sæti á þingi og myndi því ekki vera kjörgengur yrði blásið til leiðtogakjörs innan Verkamannaflokksins.

Burnham gerði tilraun til að komast á þing í byrjun árs þegar sæti í fulltrúadeild þingsins var laust en framkvæmdastjórn Verkamannaflokksins kom í veg fyrir það. Stuðningsmenn Burnhams sökuðu Starmer og hans helstu bandamenn um tilraunir til að halda Burnham í hæfilegri fjarlægð.

Burnham bauð sig fram í leiðtogasæti flokksin 2015 og laut þá í lægra haldi fyrir Jeremy Corbyn. Hann fór af þingi 2017 og varð borgarstjóri Manchester en hefur síðan verið áhrifamikill meðal þeirra sem teljast til vinstri vængs og miðju innan flokksins.

Nokkrir þeirra ráðherra sem styðja Starmer hafa rætt við fjölmiðlamenn eftir fundinn. Ráðherra vinnu- og eftirlaunamála, Pat McFadden, er einn þeirra. Hann segir Starmer ætla að halda áfram í sínu embætti eins og hann ætti að gera og eins og almenningur búist við að hann geri. „Og ég ætla að halda áfram með mitt starf.“

Þegar McFadden var spurður hvort einhver hefði mótmælt forsætisráðherranum á fundinum sagði hann að margir hefðu látið í ljós stuðning sinn.

Heilbrigðisráðherrann Wes Streeting svaraði ekki spurningum blaðamanna. Vangaveltur hafa verið um það síðustu daga hvort hann hafi hug á að bjóða sig fram til leiðtoga Verkamannaflokksins.

Ráðherrar ríkisstjórnar Keirs Starmers eru nú á leið út af fundi í Downingstræti 10. Reuters hefur eftir Steve Reed húsnæðismálaráðherra að ríkisstjórnin ætli að halda áfram með verkefni sín. Viðskiptaráðherrann Peter Kyle sagði Starmer sýna mikla staðfestu.

Tvö ár eru síðan Verkamannaflokkurinn vann sigur í þingkosningum og síðustu mánuði hefur óánægja með störf Starmers aukist. Stjórnmálaskýrandi BBC, Rob Watson, var spurður í hlaðvarpinu Global News Podcast í morgun hvað hafi farið úrskeiðis eftir sigurinn 2024. Watson sagði ljóst að gott gengi 2024 megi frekar skýra með óánægju með 14 ára valdatíð Íhaldsflokksins en endilega mikilli ánægju með Starmer og Verkamannaflokkinn.

Það er einkum tvennt sem Watson telur skýra óánægjuölduna núna. Í fyrsta lagi líki fólki einfaldlega ekki við Starmer. Í öðru lagi hafi kjósendum verið lofað breytingum í aðdraganda kosninga 2024. Ef til vill segi einhverjir það ósanngjarnt af kjósendum en að mörgum þeirra finnist eins og þessar breytingar hafi ekki orðið að veruleika. Fólk sé reitt í dag og hafi reyndar líka verið reitt fyrir kosningarnar 2024.

Breska forsætisráðuneytið hefur tilkynnt um nokkra punkta sem hafa komið fram í samræðum Starmers við ráðherra sína á fundi sem stendur yfir. Hér fyrir neðan eru nokkrir þeirra:

„Eins og ég sagði í gær þá tek ég ábyrgð á niðurstöðum kosninganna og ég tek ábyrgð á því að koma í gegn þeim breytingum sem við lofuðum.“

„Það eru ferlar innan Verkamannaflokksins til að skipta um leiðtoga og þeir hafa ekki enn verið virkjaðir.“

„Þjóðin býst við því af okkur að við höldum áfram að stjórna. Það er það sem ég er að gera og það er það sem við sem ríkisstjórn verðum að gera.“

Hluti þingmanna Verkamannaflokksins vill fá að kjósa sér nýjan leiðtoga. Til að fá slíka kosningu í gegn þarf samþykki 81 þingmanns flokksins. Alls eru þingmenn flokksins 403. Þegar hafa yfir 70 þingmenn hvatt Starmer ýmist til að fara frá strax eða fara að leggja drög að því.

Catherine West, þingmaður Verkamannaflokksins, tilkynnti í gær að hún ætli að safna undirskriftum þingmanna til að hvetja Starmer til að boða til leiðtogakjörs í september. Þessu lýsti hún yfir eftir ræðu Starmers til flokksmanna í gærmorgun.

Hún sagði að ýmsar góðar hugmyndir hefðu komið fram í ræðunni en að þær hefðu komið fram of seint og væru ekki nóg. Hún hvatti hann til að segja strax af sér embætti forsætisráðherra.

Hart hefur verið sótt að Keir Starmer, leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands, síðustu daga eftir slakt gengi í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Fundur ríkisstjórnar hans er að byrja.

Einn ráðherra í ríkisstjórn Starmers, Miatta Fahnbulleh, sagði af sér í morgun. Hún hvetur Starmer til að gefa út tímaáætlun um brottför sína úr embætti. Þá hafa 70 þingmenn Verkamannaflokksins ýmist hvatt Starmer til að segja af sér eða fara að leggja drög að brottför sinni úr embætti.

Ég heiti Dagný Hulda Erlendsdóttir og ætla hér að greina frá helstu tíðindum úr Downingstræti 10 þennan morguninn.

#hafa #ráðherrar #stjórn #tveir #yfirgefið


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-12-tveir-radherrar-hafa-yfirgefid-stjorn-starmers-474804

📰 Aðrar fréttir

Segir Rússa hafa skotið 800 drónum að Úkraínu í dag
📅 2026-05-13 17:35:29 👁️ 2

Segir Rússa hafa skotið 800 drónum að Úkraínu í dag

Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, sakar Rússlandsher um að hafa skotið 800 drónum að landinu síðan á miðnætti og drepið sex manns. Tugir eru særðir...
Leggur til að upplýsingaskylda vegi þyngra en þagnarskylda við rannsókn á vistheimilum
📅 2026-05-13 17:33:57 👁️ 10

Leggur til að upplýsingaskylda vegi þyngra en þagnarskylda við rannsókn á vistheimilum

Forsætisráðherra leggur til að upplýsingaskylda opinberra starfsmanna vegi þyngra en þagnarskylda í rannsókn óháðrar nefndar á aðstæðum barna á visthe...
Eurovision: Israel's Noam Bettan 'shocked' by semi-final protests
📅 2026-05-13 17:05:44 👁️ 0

Eurovision: Israel's Noam Bettan 'shocked' by semi-final protests

Israel's contestant at the Eurovision Song Contest has said he was surprised by protests that disrupted his semi-final performance.Several audience me...
Kerfis­villa leið­rétt og spýtu­kofinn fær að standa - Vísir
📅 2026-05-13 17:00:45 👁️ 18

Kerfis­villa leið­rétt og spýtu­kofinn fær að standa - Vísir

Fréttastofa verður í beinni útsendingu frá fögnuði barnanna í sjónvarpsfréttum klukkan 18:30. „Við erum bara búin að fá mjög af­dráttar­laust leyfi fy...
Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“ - DV
📅 2026-05-13 17:00:41 👁️ 1

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“ - DV

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, segir Viðreisn ætla sér að vinna til hægri eftir kosningar í Reykjavík. Flokkurinn daðri við Miðflokkinn e...
Trade, Iran and Taiwan on the agenda as Trump lands in China for high-stakes summit with Xi Jinping
📅 2026-05-13 17:00:12 👁️ 5

Trade, Iran and Taiwan on the agenda as Trump lands in China for high-stakes summit with Xi Jinping

US President Donald Trump descended the steps of Air Force One in Beijing on Wednesday evening, greeted with pomp and pageantry ahead of a high-stakes...
„Mjög miklar líkur“ að áfrýjað verði til Hæstaréttar
📅 2026-05-13 16:59:47 👁️ 3

„Mjög miklar líkur“ að áfrýjað verði til Hæstaréttar

Sævar Þór Jónsson, lögmaður Matthíasar Björns Erlingssonar, segir allar líkur á því að máli hans verði áfrýjað til Hæstaréttar. Refsing Matthíasar fyr...
Brother feared Nottingham triple killer would take his own life, inquiry told
📅 2026-05-13 16:42:03 👁️ 1

Brother feared Nottingham triple killer would take his own life, inquiry told

The brother of the Nottingham attacks killer has said he feared Valdo Calocane was going to take his own life, a public inquiry has heard.Calocane, wh...
Daníel nýr forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
📅 2026-05-13 16:31:58 👁️ 1

Daníel nýr forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

Daníel F. Guðbjartsson hefur verið ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæplega þrjá áratugi. Þetta seg...
Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana - „Ég var fullur“ - DV
📅 2026-05-13 16:30:15 👁️ 6

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana - „Ég var fullur“ - DV

Leikkonan Hayden Panettiere er að gefa út æviminningar sínar. Þar opnar hún sig meðal annars um ofbeldissamband við fyrrverandi kærasta sinn Brian Hic...
Árasin ein­kenndist af tals­verðri heift - Vísir
📅 2026-05-13 16:21:53 👁️ 2

Árasin ein­kenndist af tals­verðri heift - Vísir

Lögregla hefur sagt að hluti hópsins hafi áður komið við sögu lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni. Við rannsókn málsins...
Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálf­stæðis­flokkinn - Vísir
📅 2026-05-13 16:11:23 👁️ 1

Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálf­stæðis­flokkinn - Vísir

Kristrún mætti í viðtal í hlaðvarp Ólafs Arnarsonar fjölmiðlamanns, en DV hefur birt frétt upp úr spjalli þeirra undir fyrirsögninni Kristrún Frostadó...
Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna - DV
📅 2026-05-13 15:59:56 👁️ 11

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna - DV

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir það dylgjur hjá Kristúnu Frostadóttur forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinna...
Sak­fellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttar­höld - Vísir
📅 2026-05-13 15:58:42 👁️ 18

Sak­fellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttar­höld - Vísir

Murdaugh játaði fjárdráttinn en hefur ávallt haldið því fram að hann hafi ekki framið morðin. Úrskurðurinn felur ekki sjálfkrafa í sér að önnur réttar...
Bodies of three young women recovered from sea off Brighton
📅 2026-05-13 15:49:20 👁️ 18

Bodies of three young women recovered from sea off Brighton

The bodies of three young women have been recovered from the sea off Brighton.Police said a search was launched after concerns were raised for the wel...
Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir - Vísir
📅 2026-05-13 15:47:30 👁️ 4

Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir - Vísir

Þetta segir Elimar Hauksson, verjandi ungu konunnar, í samtali við Vísi. Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hlutu sextán ára dóma í Landsr...
One critical after bin lorry overturns on TF-1 motorway near Guaza
📅 2026-05-13 15:45:00 👁️ 9

One critical after bin lorry overturns on TF-1 motorway near Guaza

Three men were injured, one of them seriously, after a refuse lorry overturned in the early hours of this morning on the TF-1 motorway near Guaza in t...
Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Zelensky stígur fram – Sakar forsetann um spillingu, valdasýki og kókaínneyslu
📅 2026-05-13 15:44:28 👁️ 2

Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Zelensky stígur fram – Sakar forsetann um spillingu, valdasýki og kókaínneyslu

Fyrrverandi upplýsingafulltrúi Zelensky stígur fram – Sakar forsetann um spillingu, valdasýki og kókaínneyslu ForsíðaFréttir Tweet Hér er Iuliia Mende...
Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu - Vísir
📅 2026-05-13 15:39:41 👁️ 1

Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu - Vísir

„Ég er hjólanörd og held ég hafi bara séð þetta inni á Instagram,“ segir skipuleggjandinn Finnur Magnússon um hugmyndina. Hann segir undirtektirnar ha...
Ákærð fyrir að slá leikskólabarn og sitt eigið barn
📅 2026-05-13 15:37:18 👁️ 1

Ákærð fyrir að slá leikskólabarn og sitt eigið barn

Starfsmaður leikskóla á Austurlandi hefur verið ákærður fyrir brot á almennum hegningar- og barnaverndarlögum. Kona er grunuð um að hafa slegið leiksk...
Plaid Cymru's Rhun ap Iorwerth reveals new Welsh government ministers
📅 2026-05-13 15:37:18 👁️ 1

Plaid Cymru's Rhun ap Iorwerth reveals new Welsh government ministers

First Minister Rhun ap Iorwerth has revealed his ministerial team in Wales' first ever Plaid Cymru government.Sioned Williams will be his deputy first...
Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“ - DV
📅 2026-05-13 15:30:45 👁️ 3

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“ - DV

Söngvarinn dáði Rod Stewart hrósaði Karli III Bretlandskonungi eftir heimsóknina til Bandaríkjanna. Það er vegna þess að Karl hafi látið Donald Trump ...
Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið - „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“ - DV
📅 2026-05-13 15:30:33 👁️ 3

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið - „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“ - DV

Hrafn Thoroddsen, tónlistarmaður, segir það forréttindi að fá að vera í hljómsveitinni Ensími með bestu vinum sínum en í ár eru þrjátíu ár liðin frá s...
Lækka ráð­gjöf um hrefnu­veiðar vegna villu í út­reikningi - Vísir
📅 2026-05-13 15:24:44 👁️ 1

Lækka ráð­gjöf um hrefnu­veiðar vegna villu í út­reikningi - Vísir

Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun kemur fram að stofnunin hafi uppgötvað að villa var í ráðgjöf stofnunarinnar um veiðar á hrefnu árið 2026 vegna ...
Stefnuræða í skugga væringa í Verkamannaflokknum
📅 2026-05-13 15:19:04 👁️ 2

Stefnuræða í skugga væringa í Verkamannaflokknum

Ríkisstjórn Bretlands ætlar að beita sér gegn atvinnuleysi ungs fólks og fátækt og efla tengslin við Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kom fram...
Landsréttur mildaði dóma í Gufunesmálinu - DV
📅 2026-05-13 15:15:02 👁️ 4

Landsréttur mildaði dóma í Gufunesmálinu - DV

Landsréttur kvað í dag upp dóma í Gufunesmálinu og mildaði refsingu yfir helstu sakborningum. Málið varðar morð á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára...
Grunaður um í­trekuð brot gegn fóstur­barni - Vísir
📅 2026-05-13 15:15:00 👁️ 1

Grunaður um í­trekuð brot gegn fóstur­barni - Vísir

Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins en Vísir hefur ekki náð tali af Lögreglunni á Suðurnesjum vegna málsins. Morgunblaðið hefur fengið staðfest ...
Landsréttur mildar refsingu Lúkasar og Stefáns
📅 2026-05-13 15:09:39 👁️ 2

Landsréttur mildar refsingu Lúkasar og Stefáns

Landsréttur mildaði í dag refsingu Stefáns Blackburn og Lúkasar Geirs Ingvarssonar í 16 ára fangelsi. Matthías Björn Erlingsson hlaut 12 ára fangelsis...
„Skorri Mánas­son“ sagður þjást af „source am­nesia“ - Vísir
📅 2026-05-13 15:06:48 👁️ 2

„Skorri Mánas­son“ sagður þjást af „source am­nesia“ - Vísir

Skjáskot með upplýsingum um spurningu sem lögð var fyrir nemendur í lokaprófi í áfanganum ÞRS215G Þroskasálfræði: Allt æviskeiðið sem kenndur er á Men...
Trump fundar með Xi í Peking
📅 2026-05-13 15:05:29 👁️ 4

Trump fundar með Xi í Peking

Trump fundar með Xi í Peking Fréttin13. maí 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti er lentur í Peking og mun eiga þar langþrá...
Court overturns Alex Murdaugh's murder convictions
📅 2026-05-13 15:05:20 👁️ 5

Court overturns Alex Murdaugh's murder convictions

A South Carolina court has overturned the 2023 murder convictions of Alex Murdaugh, a disgraced lawyer who was convicted of killing his wife and son.T...
Bodies of three women recovered from sea off Brighton
📅 2026-05-13 15:04:16 👁️ 4

Bodies of three women recovered from sea off Brighton

The bodies of three women have been recovered from the sea off Brighton.Police said a search was launched after concerns were raised for the welfare o...
Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum
📅 2026-05-13 15:01:46 👁️ 3

Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum

Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum Ír­is Helga Jónatans­dótt­ir vill að rétt­ar­höld­um yf­ir henni verði lok­að fyr­ir al­menn­ing. Sak­sók...
Fá leyfi fyrir blóðtöku undir nánu eftirliti og strangari skilyrðum
📅 2026-05-13 15:01:01 👁️ 1

Fá leyfi fyrir blóðtöku undir nánu eftirliti og strangari skilyrðum

Matvælastofnun hefur veitt fyrirtækinu Ísteka starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum til tveggja ára. Það felur í sér viðbótarskilyrði til að...
Fósturfaðir á Suðurnesjum grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni - DV
📅 2026-05-13 15:00:51 👁️ 2

Fósturfaðir á Suðurnesjum grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni - DV

Fertugur karlmaður á Suðurnesjum er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem var vistað hjá honum í fóstri. Frá þessu greinir fréttastofa RÚV....
Cause of death confirmed for British tourist who fell from an apartment balcony in Playa Las Americas
📅 2026-05-13 14:57:00 👁️ 4

Cause of death confirmed for British tourist who fell from an apartment balcony in Playa Las Americas

The tragic death of a young British holidaymaker in Playa de las Américas has sent shockwaves through his hometown of Liverpool. Harrison Hanley, a 20...
Holidaymakers face €1,500 fines for taking plants and volcanic rock from Mount Teide
📅 2026-05-13 14:57:00 👁️ 3

Holidaymakers face €1,500 fines for taking plants and volcanic rock from Mount Teide

Two German tourists have been caught attempting to remove a protected plant and a large volcanic rock from Teide National Park in Tenerife, an offence...
Fúlsar við Samfylkingunni
📅 2026-05-13 14:54:36 👁️ 1

Fúlsar við Samfylkingunni

Fúlsar við Samfylkingunni Brynj­ar Ní­els­son, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar, stað­hæf­ir að flokk­...
Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum - Vísir
📅 2026-05-13 14:47:58 👁️ 1

Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum - Vísir

Æfingunni hefur verið tekið sem alvarlegri viðvörun til herja NATO um að taka upp notkun sjálfsprengidróna og þróa leiðir til að verjast þeim. Blaðame...
Fjarlægð fyrir „truflandi hegðun“ í Eurovision
📅 2026-05-13 14:33:20 👁️ 1

Fjarlægð fyrir „truflandi hegðun“ í Eurovision

Fjarlægð fyrir „truflandi hegðun“ í Eurovision Ísra­el­ar fagna ár­angri í Eurovisi­on í gær­kvöldi. Sama dag drap Ísra­els­her tvo björg­un­ar­menn. ...
Þrjár konur fundust látnar í sjónum undan Brighton
📅 2026-05-13 14:32:36 👁️ 2

Þrjár konur fundust látnar í sjónum undan Brighton

Þrjár konur fundust látnar í sjónum undan Brighton í Bretlandi í morgun. Ekki hafa verið borin kennsl á konurnar. Ekki er talið að fleiri séu í sjónum...
Harmageddon | Nýtt faraldursleikrit sett á svið
📅 2026-05-13 14:31:22 👁️ 1

Harmageddon | Nýtt faraldursleikrit sett á svið

Brotkast - 13. maí, 2026 - 14:31 Harmageddon Í þætti dagsins förum við yfir fyrstu fréttir af hinni skelfilegu hantaveiru en undirbúningur Alþjóðlegu ...
Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík - DV
📅 2026-05-13 14:30:20 👁️ 2

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík - DV

Samfylkingin telur ástæðu til að óttast það að komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda í Reykjavík muni hann á ný reyna að selja að selja Orkuveituna. ...
Kyrrsetja 1.700 manns í skemmtiferðaskipi eftir dauða farþega
📅 2026-05-13 14:28:48 👁️ 2

Kyrrsetja 1.700 manns í skemmtiferðaskipi eftir dauða farþega

Kyrrsetja 1.700 manns í skemmtiferðaskipi eftir dauða farþega Tug­ir veikt­ust og einn er lát­inn. Skip­ið stefn­ir til Ís­lands á næst­unni. Frönsk y...
Trump kominn til Kína til fundar við Xi
📅 2026-05-13 14:23:34 👁️ 2

Trump kominn til Kína til fundar við Xi

Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til höfuðborgar Kína, Beijing, og fundar á morgun með forseta landsins, Xi Jinping. Þetta er í fyrsta sinn í ...
MAST lítur innbrot í svínabú alvarlegum augum
📅 2026-05-13 14:18:14 👁️ 2

MAST lítur innbrot í svínabú alvarlegum augum

Matvælastofnun lítur á innbrot í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi alvarlegum augum, segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST. Tíu grísir drápus...
From tourist tax to digital ID: BBC correspondents on key bills in King's Speech
📅 2026-05-13 14:04:40 👁️ 3

From tourist tax to digital ID: BBC correspondents on key bills in King's Speech

King Charles III has set out the government's law-making plans in a speech to Parliament.Despite furious speculation about his leadership, Sir Keir St...
Íris Helga neitar sök - Vísir
📅 2026-05-13 14:02:03 👁️ 2

Íris Helga neitar sök - Vísir

 Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar. ...
Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út? - DV
📅 2026-05-13 14:00:35 👁️ 1

Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út? - DV

Það er orðið merkilegt hversu langt stjórnmálamenn og skipulagsyfirvöld eru tilbúin að ganga í Borgarlínuverkefninu án þess að almenningur hafi nokkur...
Trump vs Xi: Who has the upper hand?
📅 2026-05-13 14:00:28 👁️ 1

Trump vs Xi: Who has the upper hand?

The BBC's Sarah Smith explains the power dynamic between President Trump and China's Xi Jinping.