„Samkomulagið við Íslamska lýðveldið Íran er nú frágengið,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinumTruth Social.
„Ég heimila hér með að fullu opnun Hormússunds án tollgjalda og heimila um leið og samstundis að herkví Bandaríkjanna verði aflétt,“ segir hann.
„Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“
Nái einnig til Líbanon
„Báðir aðilar hafa lýst yfir tafarlausri og varanlegri stöðvun hernaðaraðgerða á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon,“ segir Shehbaz Sharif í færslu á X, áður Twitter.
„Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar greiða fyrir röð funda í þessari viku. Þessar innleiðingarviðræður munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“
Following intensive talks, we are pleased to announce that the Peace Deal between the United States of America and Islamic Republic of Iran has been REACHED. Both sides have declared the immediate and permanent termination of military operations on all fronts, including in…
— Shehbaz Sharif (@CMShehbaz) June 14, 2026
Írönsk stjórnvöld hafa enn ekki tjáð sig opinberlega um samkomulagið en greint var frá því í útsendingu ríkissjónvarpsins og vísað í tilkynningu forsætisráðherra Pakistans.
Í yfirlýsingu sem flutt var í ríkissjónvarpinu er fullyrt að Bandaríkin hafi verið „neydd til þess að skrifa undir samning“ sem bindi enda á stríðið við Íran. Þetta segir
Ghoncheh Habibiazad, fréttamaður BBC Persian. Ríkismiðilinn lýsi niðurstöðunni sem sigri fyrir stjórnvöld í Teheran.
Fars-fréttastofan í Íran sem er með tengsl við íranska byltingarvörðinn segir von á yfirlýsingu frá stjórnvöldum um samkomulagið.
Fréttin er í vinnslu.