Olíuverð hækkaði eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á fundi með stjórnendum olíufyrirtækja að herkví Bandaríkjanna um Íran gæti staðið í nokkra mánuði. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir embættismanni sem krefst nafnleyndar og að Trump hafi bætt við að herkvíin hefði meiri og þyngri áhrif á efnahagslíf Írana en sprengjuárásir.
Hann hafi jafnframt greint frá þeim leiðum sem stjórnvöld hygðust grípa til svo minnka mætti áhrif olíuskorts á bandarískan almenning.
„Þeir eru að kafna eins og troðinn grís,“ sagði Trump síðar um Írani í viðtali við vefritið Axios og að allt horfði til verri vegar fyrir Íransstjórn. Þingforsetinn og helsti samningamaður Írana, Mohammad Bagher Ghalibaf, segir herkvínni greinilega ætlað að valda sundrungu og valda hruni innan Írans.
Verðið á tunnunni af Brent-Norðursjávarolíu rauk í gær upp í tæpa 120 bandaríkjadali, sem er hæsta verð frá því Rússar réðust inn í Úkraínu 2022.
Íranar hafa hefnt fyrir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna með því að loka nánast fyrir alla umferð um Hormússund þar sem á friðartímum er siglt með um fimmtung allrar olíu sem heimurinn þarfnast. Ekki er útlit fyrir samningaviðræður á næstunni eftir að sendinefndir Bandaríkjanna hættu tvisvar við ferð til Pakistan þeirra erinda um helgina.