Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að framleiða vegabréf með mynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta í takmörkuðu upplagi í sumar. Vegabréfin eru hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 250 ára afmæli sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna í júlí.
Tommy Pigott, talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, staðfestir þetta í samtali viðFox News.
Mynd af Trump umkringdum texta sjálfstæðisyfirlýsingarinnar, bandaríska fánanum og undirskrift forsetans í gulli mun prýða innanverða kápu vegabréfanna. Á síðunni við hliðina á verður frægt málverk af undirritun sjálfstæðisyfirlýsingarinnar árið 1776.
Pigott segir vegabréfin, sem verða með sérsniðnum listaverkum og endurbættum myndum, muni viðhalda „sömu öryggisþáttum og gera bandaríska vegabréfið að öruggasta skjali í heimi“.
Bandaríska myntsláttan hefur einnig tilkynnt áform um gullpeninga með mynd af Trump og fjármálaráðuneytið hefur upplýst að pappírspeningaseðlar muni bera undirskrift Trumps. Seðlarnir verða þá þeir fyrstu sem undirritaðir eru af sitjandi Bandaríkjaforseta.