Flugvél sem flutti fallhlífastökkvara hrapaði í dag í Missouri-ríki í Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að allir tólf farþegar vélarinnar létust. Þetta herma heimildir viðbragðsaðila í samtali við AFP-fréttastofuna.
Flugslysið varð nálægt Butler Memorial-flugvellinum, um 95 kílómetra suður af Kansas City, að sögn Dennis Jacobs, yfirmanns almannavarna í Bates-sýslu.
Einkaflugvélin, sem flutti ellefu fallhlífastökkvara og einn flugmann, sneri við af ókunnum ástæðum skömmu eftir flugtak um klukkan 11:30 að staðartíma og hrapaði nálægt þjóðvegi, sem varð til þess að yfirvöld lokuðu veginum, að því er fram kemur í fréttum héraðsmiðla.
Þar sem Kansas City hýsir nokkra leiki á HM í fótbolta sagði lögreglustjóri að nafni Chad Anderson á blaðamannafundi að yfirvöld sæju engar vísbendingar um hryðjuverk eða glæpsamlegt athæfi í tengslum við slysið.
„Að öllu virðist þetta vera slys,“ sagði hann.
Anderson sagðist ekki vita hver ætti flugvélina eða nafn fallhlífastökksfyrirtækisins eða samtakanna sem áttu hlut að máli.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (NTSB) og Flugmálastofnun Bandaríkjanna (FAA) eru að hefja rannsókn á málinu að hans sögn.
Þá sagði hann að prestar væru á staðnum til að veita aðstandendum fórnarlambanna stuðning.