Marga dreymir um að eignast stórt og gott einbýlishús. Síðustu helgi tók DV saman lista yfir þau tíu ódýrustu sem eru til sölu á Íslandi í dag, verðið á þeim var á bilinu 11 til 30 milljónir króna og staðsetningin fjarri höfuðborgarsvæðinu. Hér gefur að líta þau tíu dýrustu sem eru til sölu á Íslandi í dag.
Skeljatangi, Reykjavík

Ásett verð: 690 milljónir
Fermetrar: 547
Byggingarár: 2008
Húsið stendur á 1.258 fermetra sjávarlóð innst í rólegri botnlangagötu með útsýni að Bessastöðum. Fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Á efri hæð er hjónasvíta sem spannar alla hæðina. Á neðstu hæð er spa-rými með niðurgröfnum sérhönnuðum heitum potti og setusvæði, þar er einnig líkamsræktarsalur með innbyggðu hljóðkerfi. Við austurhlið hússins er pallur með heitum potti og útisturtu. Á neðri hæðinni er sérstakt tæknirými fyrir búnað hússins.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt hannaði húsið og hefur það nokkrum sinnum ratað í fréttir en eigandinn er Margrét Ásgeirsdóttir læknir og fjárfestir.
Sjá nánar
Skólavörðustígur, Reykjavík

Ásett verð: 495 milljónir
Fermetrar: 275
Byggingarár: 1923
Húsið er teiknað af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og fyrrverandi húsameistara ríkisins. Alls ellefu herbergi, ellefu baðherbergi, tvær aukaíbúðir, garður og bílskúr, einnig fylgir sér bílastæði. Steinveggur er um lóðina við götu. Húsið hefur áður ratað í fréttir.
Sjá nánar
Kaldakur, Garðabæ

Ásett verð: 450
Fermetrar: 456
Byggingarár: 2008
Innst í botnlanga í Akrahverfinu í Garðabæ. Fjögur svefnherbergi, þrjár stofur, þrjú baðherbergi, eldhús, tómstundarherbergi og bílskúr. Arinn er í stofu. Skjólsæll garður með sólpalli og heitum potti. Í hjónaherberginu er fataherbergi.
Sjá nánar
Sjafnargata, Reykjavík

Ásett verð: 410 milljónir
Fermetrar: 384
Byggingarár: 1930
Í húsinu eru sjö herbergi, þrjár stofur, tvö baðherbergi og tvö gestasalerni. Af stigapalli efri hæðar er gengið upp teppalagðan stiga upp í arinstofu sem er á efstu hæð hússins. Skjólsæll garður sem snýr í suður. Sjafnargatan hefur áður ratað í fréttir en það hefur gengið hægt að selja það.
Sjá nánar
Auðnukór, Kópavogi

Ásett verð: 375 milljónir
Fermetrar: 440
Byggingarár: 2011
Nýlegt hús á útsýnisstað innst í botnlanga. Stór stofa, vínkjallari, fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Gasarinn í stofunni.
Sjá nánar
Holtstún, Álftanesi

Ásett verð: 350 milljónir
Fermetrar: 289
Byggingarár: 2025
Glænýtt fimm herbergja einbýlishús. Hátt er til lofts, gólfsíðir gluggar og gólfhiti er í húsinu. Fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Stór eignalóð og gert ráð fyrir nýjum golfvelli.
Sjá nánar
Dýjagata, Garðabæ

Ásett verð: 349 milljónir
Fermetrar: 396
Byggingarár: 2015
Gott útsýni og þrefaldur bílskúr. Í dag er húsinu skipt í tvær íbúðir en tekið er fram að hægt sé að færa aftur í eina íbúð. Þrjú svefnherbergi og fjögur baðherbergi.
Sjá nánar
Haukanes, Garðabæ

Ásett verð: 340 milljónir
Fermetrar: 384
Byggingarár: 1979
Stórt einbýlishús á tveimur hæðum á sjávarlóð á Arnarnesinu. 6 svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi. Garðurinn var allur tekinn í gegn sumarið 2023.
Sjá nánar
Sóleyjargata, Reykjavík

Ásett verð: 335 milljónir
Fermetrar: 414
Byggingarár: 1933
Heilt hús í miðbæ Reykjavíkur, í dag er þar rekið gistiheimili. Alls þrettán herbergi og bílskúr, bílskúrinn er í dag innréttaður sem stúdioíbúð.
Sjá nánar
Blikanes, Garðabæ

Fasteignamat: 305 milljónir
Fermetrar: 563
Byggingarár: 2001
Húsið er 563 fermetrar, átta herbergjum, fimm baðherbergjum, bílskúr, garðskála og heitum potti. Húsið er teiknað af Pálmari Kristmundssyni hjá PK arkitektum. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar.
Sjá nánar
Einbýlishús á sjávarlóð, Garðabæ

Óskað eftir tilboði
Til sölu er 785 fermetra einbýlishús á sjávarlóð á Arnarnesi, alls sjö svefnherbergi og fimm baðherbergi. Eldhús er afar veglegt og vel tækjum búið og skartar glæsilegri hönnunarinnréttingu frá Clive Christian í London. Útgengi er bæði úr stofum og eldhúsi út í garð. Rými sem henta einkar vel til veisluhalda. Á neðstu hæðinni er spa með stórri saunu, heitum potti, baraðstöðu með ísskáp, snyrtingu, tvöfaldri sturtu, afslöppunarrýmum og sólskála.