Fræsa þarf upp nýlega lagt klæðingarlag á um eins kílómetra löngum kafla Snæfellsvegar við Kaldármela og leggja að nýju eftir að það skemmdist.
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar fundaði með stjórnendum Vegagerðarinnar og segir þá hafa lofað meiri vandvirkni.
Umferð og laust steinefni skemmdu yfirborð vegarins
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að fimmtudaginn 20. ágúst hafi neðra lag klæðingar verið lagt á um eins kílómetra löngum kafla.
Gert hafi verið ráð fyrir þurru veðri sólarhring eftir verkið samkvæmt veðurspám. Því hafi staðið til að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Rigning hafi þó komið í veg fyrir það. Mikil þung umferð í samspili við hið lausa steinefni hafi skemmt yfirborð vegarins.
Verkið var boðið út 3. febrúar og var samið við Borgarverk um framkvæmdina. Vinna hófst í byrjun maí og er verkið nokkuð á eftir upphaflegri áætlun vegna breytinga á hönnun eftir að framkvæmdir hófust.
Bæjarstjóri átti leið um veginn og tók eftir holum
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, vakti athygli á málinu í gær. Hann sagði að klæðing á veginum sem lögð hafi verið á fimmtudeginum 20. ágúst hafi verið orðin holótt þegar hann átti leið um veginn næsta sunnudag.
Hann fundaði í dag með yfirmönnum Vegagerðarinnar á norðvestursvæði ásamt framkvæmdastjórum sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, í Dölum og Borgarbyggð.
„Þeir töluðu um það að þeir hefðu veðurfræðing á sínum snærum. Þeir myndu vera í sambandi við hann þannig að menn myndu reyna að horfa fram í tímann hvað varðar hvort veðurspáin gangi eftir og vanda sig við það að það verði ekki klætt á undan rigningu,“ segir Kristinn.
„Svo sögðu þeir það líka og við lögðum það líka til framkvæmdastjórnarinnar að til þess að fá betri veg yrði tímabundnum lokunum beitt á meðan verið væri að klæða veginn.“