„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ - Vísir

„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ - Vísir

„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ - Vísir

Í dag er Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi. Talið er að yfir 10 milljónir manns í heiminum, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. CCU-samtökin hafa því komið fyrir fjólubláum salernum víða um bæ til að vekja athygli á sjúkdómunum og afleiðingum þeirra.

Í ár vekja samtökin athygli á því að það eigi ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum.

„Það er mikilvægt að eyða öllum fordómum og sérstaklega gagnvart umræðu um einkenni sem geta valdið því að fólk beri einhvers konar skömm, segi ekki frá og leiti sér ekki aðstoðar. Með þessari vitundarvakningu vonumst við til að opna enn frekar fyrir jákvæða umræðu með upplýstara samfélagi,“ segir í tilkynningu um vitundarvakninguna.

Einu salerni hefur verið komið fyrir á Lækjartorgi. Aðsend

Ófyrirsjáanleg þörf fyrir aðgengi að salerni

Þar kemur einnig fram að markmið verkefnisins sé að vekja athygli á sjúkdómum sem hafa í för með sér brýna og oft ófyrirsjáanlega þörf fyrir aðgengi að salerni. Margir sem lifa með bólgusjúkdóma í meltingarvegi þurfi að komast á klósett án tafar og skortur á skilningi eða aðgengi getur haft veruleg áhrif á lífsgæði þeirra, þátttöku í samfélaginu og öryggi.

Rætt var við þau Hildi Dís Jónsdóttur Scheving, sem er með Crohns, og Hjalta Þór Davíðsson, sem er með sáraristilbólgu, um þennan alþjóðlega vitundardag í Bítinu á Bylgjunni.

Hildur var um tólf ára þegar einkennin byrjuðu.

„Ég var alltaf veik eftir bekkjarafmæli, alltaf mjög slöpp daginn eftir og miklir verkir. Það er í kringum fermingu sem ég fæ stóra kastið sem varir í nokkrar vikur,“ segir hún og að sjúkdómurinn hafi ágerst eftir það og sem dæmi hafi hún lítið getað mætt á sínu fyrsta ári í menntaskóla.

„Þetta eru rosalegir verkir, loftverkir og krampar,“ segir hún og að aukaverkanir af lyfjunum og sjúkdómnum séu einnig miklar og nefnir örmögnun og liðbólgu.

Hjalti segist ekki hafa upplifað eins mikla verki þó að þeir hafi vissulega verið til staðar.

Eitt salernið er fyrir utan þinghúsið. Aðsend

Missti svo mikið blóð í klósettferðunum

„Mín fyrstu einkenni voru skrítinn magaverkur, ekkert óviðráðanlegur, en svo er það versnandi niðurgangur og svo er komið blóð í niðurganginn og ég er kominn með hita. Það verða svona snjóboltaáhrif,“ segir hann og að sjúkdómurinn hafi svo haldið áfram að versna.

„Að lokum var þetta orðið svo slæmt að það vantaði í mig blóð, ég missti svo mikið í klósettferðunum,“ segir hann. Hann segir, eins og Hildur, að hann upplifi miklar aukaverkanir af lyfjunum. Hann sé til dæmis með psoriasis-bletti víða á líkamanum en það séu sömu líftæknilyf notuð við báðum sjúkdómum.

Hildur segist ekki hafa náð því að verða einkennalaus á lyfjum um árabil. Frá meðgöngu árið 2014 hafi hún ekki farið í sjúkdómshlé. Lyfin gefi aðeins eðlilegra líf en mjög fáir nái að vera alveg einkennalausir.

Þau telja sjúkdóminn að einhverju leyti lífsstílstengdan og að einkennin magnist til dæmis upp við streitu. Hildur segir suma ná bata með mataræði en misjafnt sé hvað hjálpi, sumir séu til dæmis verstir af grænmeti því það geti verið erfitt að melta það. Þannig sé sjúkdómurinn persónubundinn og hver þurfi að prófa sig áfram.

„Ég er einmitt þeim megin að ég fúnkera best á mjög einföldum mat, um leið og ég fæ mér salat, sérstaklega brokkolí, finn ég vel fyrir því, segir Hjalti og að það henti honum alls ekki.

„Það er hægt að hugsa það bara þannig að það séu sem fæstir litir á disknum,“ segir hann og að hann sé svo heppinn að lyfin hafi sett hann í algjört sjúkdómshlé.

Álag og streita versti óvinurinn

Rannsóknir hafa sýnt að tíðni sjúkdómsins jókst eftir 1950 samhliða breytingum í mataræði um allan heim. Hjalti segir lækna ekki endilega alla sammála um það en það sem hann tengi helst við sjúkdóminn sé streita og álag.

„Það er okkar versti óvinur og við búum í umhverfi þar sem er mikil streita og álag. Það er mikill hraði í samfélaginu og miklar kröfur,“ segir hann og það hafi mest áhrif hjá honum að takmarka streitu. Hildur tekur undir þetta.

Hildur segir mesta vesenið við sjúkdóminn að hafa verið þurfa að komast á klósettið og sérstaklega þegar hún var unglingur.

„Fólk var ekkert endilega að trúa manni og maður vissi ekki almennilega hvað var í gangi. Stressið við að ferðast til dæmis, þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er, þó að maður sé ekki endilega í kasti,“ segir Hildur.

Þau segja misjafnt hvort fólk fái einhvern fyrirvara og sumir hafi jafnvel engan tíma til að ná á klósettið.

„Ég held að það væri gott að fá skilning og tillit,“ segir Hildur um vitundarvakninguna og tilgang hennar. Þess vegna stígi hún fram og opni sig núna. 22 ár séu frá greiningu og þetta sé það sem henni þyki erfiðast og fólk hugsi sjaldan út í það.

Hörmung að fara í „happy“

Hún nefnir sem dæmi vinahóp sem ætlar í „happy“ í bænum. Það séu fyrir henni algjörar hörmungar.

„Það er ekki gaman að fara út að borða eða fá sér popp í bíó, það getur verið hörmung,“ segir hún og að popp, döðlur og mangó sé til dæmis slæmt fyrir hana. Sumir segja að nikótín hjálpi því það dragi saman æðarnar og Hjalti segir suma greinast þegar þeir hætta að reykja. Þeir haldi sjúkdómnum kannski niðri með því að nota aðrar tegundir nikótíns þó að það sé mikil skaðsemi sem fylgi því.

Þau segja mikinn stuðning í CCU-samtökunum en einnig sé umræðuhópur fyrir fólk sem greinist með þessa sjúkdóma á Facebook.

„Þar er fólk að velta fyrir sér hinu og þessu, á öllum stigum sjúkdómsins,“ segir Hjalti og að það geti verið rosalega gott að geta tengt við aðra og speglað sig í þeim.

Fólk þarf oft skyndilega að komast á klósettið. Aðsend

Geta greinst á öllum aldri

Hafsteinn Óli Guðnason, meltingarlæknir með sérhæfingu í bólgusjúkdómum á Miðstöð meltingarlækna í Glæsibæ, segir báða sjúkdóma herja á meltingarveginn. Sáraristilbólgan herji á ristilinn á meðan Crohns-sjúkdómurinn geti verið alveg frá vélinda og niður í endaþarm.

„Þannig að það er bara allur meltingarvegurinn.“

Hann segir fólk geta fengið þessa sjúkdóma á öllum aldri en það sé oftast ungt fólk sem greinist með þá.

„Margir láta sig hafa þetta í mörg ár eða mánuði þar til þeir loksins leita sér hjálpar, af því það er alltaf smá skömm í því að vera með niðurgang eða einhver vandamál þarna niðri,“ segir hann og að það sé eitt algengasta einkenni beggja sjúkdóma. Þess vegna skipti verulegu máli fyrir fólk að vita hvar og hvernig aðgengi sé að salernum þegar það þurfi að nota þau. Niðurgangurinn geti komið mjög skyndilega.

„Sumir eru með lausar hægðir nokkrum sinnum á dag og sumir eru mjög slæmir og fara yfir tíu sinnum á dag. Þetta getur endað með innlögn af því að það er svo mikill vökvaskortur og vesen í kringum þetta.“

Hafsteinn Óli segir fólk stundum geta haldið sjúkdómnum niðri og sjaldgæfara sé að fólk þurfti að fara í aðgerð. Aðsend

Hann segir ólíkar leiðir til að greina sjúkdómana. Sáraristilsbólgan birtist fólki yfirleitt í blóðugum hægðum en ekki Crohns. Þá sé fólk frekar verkjað eða hægðir geti jafnvel stöðvast alveg.

„Það getur verið þrenging í meltingarveginum og erfitt fyrir fæðuna að fara í gegn og sumir koma inn af því að þeir eru bara stopp og þurfa að fara í bráðaaðgerð til þess að losa stífluna og sumir enda þá með stóma, annaðhvort varanlegt eða tímabundið.“

Stundum þurfi að leggja fólk inn til að fá stera og vökva í æð og einhverjir fari á líftæknilyf. Í öðrum tilfellum getur bólgan verið svo mikil að ristillinn er hreinlega tekinn í heild eða hluta. Hann segir að með tilkomu líftæknilyfja sé ekki jafn algengt að fólk fari í skurðaðgerð til að fjarlægja ristilinn.

Meðferð betri í dag

„Þetta hefur gert það að verkum að við erum með miklu betri meðferð heldur en fyrir 30 árum síðan og þá eru færri og færri sem þurfa að fara í aðgerð á endanum.“

Lyfin lækni samt sem áður ekki sjúkdóminn heldur haldi honum aðeins niðri. Því geti hann alltaf blossað aftur upp.

„Þetta er krónískur sjúkdómur, fólk getur verið bólgu- og einkennalaust í einn mánuð, fimm ár, 50 ár eða bara allt lífið. En það gæti blossað upp hvenær sem er, þannig að fólk er alltaf í eftirliti hjá meltingarsérfræðingi þegar það er nauðsynlegt og er á þessum lyfjum.“

Hægt er að fara á klósettið í ráðhúsinu þurfi maður þess. Aðsend

Alþjóðleg vitundarvakning

Í dag er Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi. Talið er að yfir 10 milljónir manns í heiminum, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. CCU-samtökin hafa því komið fyrir fjólubláum salernum víða um bæ til að vekja athygli á sjúkdómunum og afleiðingum þeirra.

Í ár vekja samtökin athygli á því að það eigi ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum.

Með uppsetningu fjólublás salernis í miðbænum vilja samtökin auka vitund almennings um þessi málefni og stuðla að auknum skilningi og samkennd.

CCU er aðildarfélag að EFCCA, en það eru regnhlífarsamtök 46 samtaka um allan heim sem taka þátt í að vekja athygli á sjúkdómunum með ýmsu móti.

#alltaf #vegna #vita #öryggisins #þarft

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262885997d/-thu-tharft-alltaf-ad-vita-oryggisins-vegna-hvar-naesta-klosett-er-

📰 Aðrar fréttir

Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
📅 10.06.2026 👁️ 0
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verður ekki leystur úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið móður sinnar sem er alvarlega ve...
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
📅 10.06.2026 👁️ 0
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá bankanum. Þetta kemur f...
Flytja aftur út sökum myglu
📅 10.06.2026 👁️ 0
Flytja aftur út sökum myglu
Fiskistofa hefur beðið starfsfólk sitt að vinna heima eftir að mygla greindist á nýjan leik í húsnæði þeirra á Borgum, við Norðurslóð á Akureyri. Fisk...
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hildur segist ekki geta grein...
„Erfitt að horfa á mjúka flokkinn sinn vera orðinn svona harðan“ - Eiríkur: „Sorglegt, ömurlegt og sárt“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 0
„Erfitt að horfa á mjúka flokkinn sinn vera orðinn svona harðan“ - Eiríkur: „Sorglegt, ömurlegt og sárt“ - DV
„Það var sorglegt, ömurlegt og sárt að hlusta á ýmsa þingmenn sem ég treysti og hafði trú og álit á greiða atkvæði með frumvarpi sem heimilar að börn ...
Leikkonan lýsir martröð eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu megrunarlyfi - DV
📅 10.06.2026 👁️ 0
Leikkonan lýsir martröð eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu megrunarlyfi - DV
Leikkonan Mayim Bialik hefur greint frá alvarlegum aukaverkunum sem hún varð fyrir eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu GLP-1 lyfi. Hún segir re...
Fram­kvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Fram­kvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið - Vísir
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði íslenska ríkið, Landsvirkjun og fleiri í dag af öllum kröfum landeigenda við Þjórsá, sem kröfðust þess meðal annars að...
Trump says US will hit Iran 'hard' again on Wednesday
📅 10.06.2026 👁️ 0
Trump says US will hit Iran 'hard' again on Wednesday
Donald Trump has said the US will hit Iran "hard" on Wednesday, after the two sides exchanged strikes overnight."We hit them hard yesterday and we're ...
Veitingamenn ósáttir með gjaldtöku hátíða
📅 10.06.2026 👁️ 0
Veitingamenn ósáttir með gjaldtöku hátíða
Það er ótækt að skipuleggjendur viðburða líti á matarvagna sem viðskiptavini en ekki hluta af þjónustu, segir Hjalti Vignisson veitingamaður. Hjalti e...
Employee seriously injured after falling 15 metres from building in Tenerife
📅 10.06.2026 👁️ 0
Employee seriously injured after falling 15 metres from building in Tenerife
A 39-year-old worker has been seriously injured after falling around 15 metres inside a building in Tenerife this morning (Wednesday).The workplace ac...
Hæstiréttur tekur fyrir mál Steinu hjúkrunarfræðings
📅 10.06.2026 👁️ 0
Hæstiréttur tekur fyrir mál Steinu hjúkrunarfræðings
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings. Landsréttur sakfelldi Steinu í febrúar fyrir manndráp af gáleysi fyr...
Five jailed over Henry Nowak police protest in Southampton
📅 10.06.2026 👁️ 0
Five jailed over Henry Nowak police protest in Southampton
Five men have been jailed for violent disorder at a protest in Southampton following the murder of Henry Nowak.Daniel Frost, 44, of Southampton, was j...
Norðurþing segir að ruslamál á Raufarhöfn séu í vinnslu hjá heilbrigðiseftirliti
📅 10.06.2026 👁️ 0
Norðurþing segir að ruslamál á Raufarhöfn séu í vinnslu hjá heilbrigðiseftirliti
Norðurþing segir að málefni lóðar á Raufarhöfn sem íbúar hafa gagnrýnt harðlega vegna uppsöfnunar gamalla ökutækja, vinnuvéla og lausamuna sé komið í ...
Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svart­hol - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svart­hol - Vísir
Tiltölulega fljótt eftir að JWST var tekinn í notkun fóru áðurnefndir rauðir blettir að vekja furðu. Þeir sáust víða á myndum geimsjónaukans og höfðu ...
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum: Skil á ársreikningi hafa tafist vegna tjóns á eldislöxum
📅 10.06.2026 👁️ 1
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum: Skil á ársreikningi hafa tafist vegna tjóns á eldislöxum
Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára hjá fyrirtæki...
Premier League: Who have been the signings of the season?
📅 10.06.2026 👁️ 1
Premier League: Who have been the signings of the season?
The summer and January transfer windows delivered some stellar additions to the Premier League this season. From midfield architects to dynamic attack...
Al­menningur ekki talinn eiga rétt á upp­lýsingum um ETS-sér­lausn - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Al­menningur ekki talinn eiga rétt á upp­lýsingum um ETS-sér­lausn - Vísir
Íslensk stjórnvöld semja nú við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um einhvers konar framlengingu á sérlausn sem þau fengu fyrir flugfélög sem fljúga ...
Héraðsdómur staðfestir virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar
📅 10.06.2026 👁️ 0
Héraðsdómur staðfestir virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Landsvirkjun virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar...
Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB
📅 10.06.2026 👁️ 0
Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB
Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta segir í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í svok...
„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“
📅 10.06.2026 👁️ 1
„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“
„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“ Stofn­andi Sósí­al­ista­flokks­ins, Gunn­ar Smári Eg­ils­son, seg­ir nýj­an formann flokks­ins, Jón Ferdínand Esth...
Adeje Chicken Fair returns with food, music and family fun
📅 10.06.2026 👁️ 0
Adeje Chicken Fair returns with food, music and family fun
Food lovers are in for a treat this month as the popular Adeje Chicken Fair returns for its second edition, bringing together local restaurants that s...
Barn réðst með belti á önnur börn - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Barn réðst með belti á önnur börn - Vísir
Þolendurnir eru báðir fæddir árið 2013 en meintur gerandi árið 2014, að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á h...
Harmageddon | Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi
📅 10.06.2026 👁️ 1
Harmageddon | Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi
HarmageddonJonathan Hall, óháður eftirlitsaðili með hryðjuverkalöggjöf í Bretlandi, segir stjórnvöld þurfa að ræða tengsl innflytjendamála og þjóðarör...
Ástandið hræðilegt: 20 ára innviðaskuld
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ástandið hræðilegt: 20 ára innviðaskuld
Stjórnvöld hafa um árabil lofað að bæta úr námsgagnaskorti á Íslandi. Starfshópar hafa verið skipaðir, skýrslur skrifaðar og málþing haldið en ekkert ...
Hæsti­réttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meið­yrða­mál - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meið­yrða­mál - Vísir
Dómur Landsréttar féll í mars fyrr á þessu ári. Þar var Hjálmar sýknaður af stefnu Elju starfsmannaþjónustu, sem er félag fjárfestanna Arnars Hauksson...
Jón Atli er með banvænt heilaæxli – Sjúkratryggingar Íslands neita honum um meðferð sem getur lengt líf hans - DV
📅 10.06.2026 👁️ 1
Jón Atli er með banvænt heilaæxli – Sjúkratryggingar Íslands neita honum um meðferð sem getur lengt líf hans - DV
Jón Atli Magnússon, fjölskyldumaður í blóma lífsins, greindist með eitthvert banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst, glioblastóm, en um er að ræða illk...
Swae Lee tryllir Ís­lendinga í ágúst - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Swae Lee tryllir Ís­lendinga í ágúst - Vísir
Swae Lee tilkynnti í dag um Evróputúr sinn í kjölfarið á útgáfu breiðskífunnar Same Difference sem kom út í apríl. Á túrnum kemur Lee fram í Varsjá í ...
Hvers vegna er Pólland ævareið út í Úkraínu? – áhugi Kíev á nasistum skýrir það
📅 10.06.2026 👁️ 2
Hvers vegna er Pólland ævareið út í Úkraínu? – áhugi Kíev á nasistum skýrir það
Hvers vegna er Pólland ævareið út í Úkraínu? – áhugi Kíev á nasistum skýrir það Fréttin10. júní 2026Erlent, Stjórnmál, ÚkraínustríðiðLeave a Comment V...
Virkjunar­leyfi vegna Hvammsárvirkjunar fær grænt ljós - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Virkjunar­leyfi vegna Hvammsárvirkjunar fær grænt ljós - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp rétt fyrir klukkan 15. Hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Þar sem um...
Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós - Vísir

Nýr formaður sósíalista segir stuðningsmenn Sönnu og Gunnar Smára hafa unnið gegn flokknum - DV
📅 10.06.2026 👁️ 1
Nýr formaður sósíalista segir stuðningsmenn Sönnu og Gunnar Smára hafa unnið gegn flokknum - DV
Jón Ferdínand Estherarson, nýkjörinn formaður Sósíalistafllokks Íslands, segir rangfærslur hafa birst um aðalfund flokksins í fjölmiðlum síðustu daga,...
Tóku á­kvörðun um að skrá fólk úr flokknum - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Tóku á­kvörðun um að skrá fólk úr flokknum - Vísir
Sæþór Benjamín Randalsson, nýkjörinn varaformaður Sósíalistaflokksins, segir í samtali við Vísi að framkvæmdastjórn flokksins hafa framfylgt flokksreg...
Miðflokkurinn skipti út syninum fyrir föðurinn - DV
📅 10.06.2026 👁️ 1
Miðflokkurinn skipti út syninum fyrir föðurinn - DV
Meðal þess sem tekið var fyrir á aukafundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær var tillaga Miðflokksins um að Ari Edwald oddviti flokksins í borgarstjórn...
Strictly Come Dancing: Lacey Turner confirmed as first 2026 celebrity contestant
📅 10.06.2026 👁️ 2
Strictly Come Dancing: Lacey Turner confirmed as first 2026 celebrity contestant
Actress Lacey Turner will compete on the new series of Strictly Come Dancing, the BBC has confirmed.The EastEnders star is the first celebrity contest...
Hefja undirskriftasöfnun til að mótmæla ákvörðun ráðherra
📅 10.06.2026 👁️ 1
Hefja undirskriftasöfnun til að mótmæla ákvörðun ráðherra
Rúmlega 500 manns hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista gegn ákvörðun innviðaráðherra um að taka ferjuna Baldur úr siglingum um Breiðafjörð og færa...
Ben Stokes out of England squad, Joe Root captains for second Test
📅 10.06.2026 👁️ 2
Ben Stokes out of England squad, Joe Root captains for second Test
Ben Stokes will miss England’s second Test against New Zealand at The Oval following an incident in a London nightclub, with Joe Root stepping up as i...
Líf­seigustu mýturnar um of­fitu: „Það er ekki sjúk­dómur að fitna“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Líf­seigustu mýturnar um of­fitu: „Það er ekki sjúk­dómur að fitna“ - Vísir
Það ríkir mikil upplýsingaóreiða um sjúkdóminn offitu, mögulega af því að sama hugtakið er notað annars vegar um þann sem er sjúkur og hins vegar um þ...
Orðið á götunni: Atvinnulífið vælir við GRÁTMÚRINN í Borgartúni 35 - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Atvinnulífið vælir við GRÁTMÚRINN í Borgartúni 35 - DV
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu héldu ráðstefnu í gær þar sem meginefnið var að vorkenna bönkunum vegna þess að stjórnvöld hafa lagt bankaskatt á...
Eigin­maðurinn fékk krabba­meinið sem hún hræddist mest - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Eigin­maðurinn fékk krabba­meinið sem hún hræddist mest - Vísir
Í synjun Sjúkratrygginga, SÍ, er vísað til þess að samkvæmt ákvæðum laga um sjúkratryggingar sé hægt að sækja um meðferð erlendis „þegar um er að ræða...
Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss - DV
Það stefnir í sannkallaða fótboltaveislu í miðbæ Selfoss á næstu vikum þegar stór risaskjár verður settur upp fyrir stuðningsfólk sem vill upplifa lei...
Two migrants jailed under new small boats law
📅 10.06.2026 👁️ 2
Two migrants jailed under new small boats law
Two men have become the first to be jailed under a new law targeting people who risk the safety of others by piloting small boats across the Channel.A...
Ræða „endur­skipu­lagningu“ her­stöðva í Sýr­landi - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Ræða „endur­skipu­lagningu“ her­stöðva í Sýr­landi - Vísir
Þegar Bashar al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, flúði til Rússlands í lok árs 2024 voru uppi efasemdir um framtíð tveggja rússneskra herstöðva þa...
Brim segir upp hluta starfsmanna á Vopnafirði
📅 10.06.2026 👁️ 2
Brim segir upp hluta starfsmanna á Vopnafirði
Útgerðarfélagið Brim segir upp 20 manns sem starfa við uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á Vopnafirði. Vísir greindi fyrst frá.Þar segir að fyrirtækið ha...
Brim segir upp 20 starfsmönnum á Vopnafirði
📅 10.06.2026 👁️ 1
Brim segir upp 20 starfsmönnum á Vopnafirði
Útgerðarfélagið Brim segir upp 20 manns sem starfa við uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á Vopnafirði. Vísir greindi fyrst frá.Brim birti tilkynningu eft...
Jón Ferdínand svarar gagnrýni eftir sigur í formannsslag í Sósíalistaflokknum
📅 10.06.2026 👁️ 2
Jón Ferdínand svarar gagnrýni eftir sigur í formannsslag í Sósíalistaflokknum
Jón Ferdínand Estherarson, sem nýverið var kjörinn formaður Sósíalistaflokks Íslands með 63 prósent greiddra atkvæða, hefur vísað á bug ásökunum um óe...
Ferðum Ís­lendinga til út­landa fækkar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Ferðum Ís­lendinga til út­landa fækkar - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef Ferðamálastofu en þar segir einnig að Bandaríkjamenn hafi verið tæplega þriðjungur þeirra sem f...
Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer - DV
Leikkonan Jennifer Garner telur að pása frá stefnumótum væri besta ákvörðunin sem hennar fyrrverandi og barnsfaðir, leikarinn og leikstjórinn Ben Affl...
Bakery worker threatened at gunpoint in Gran Canaria
📅 10.06.2026 👁️ 2
Bakery worker threatened at gunpoint in Gran Canaria
A bakery worker in Las Palmas de Gran Canaria managed to stop an attempted armed robbery after two hooded men threatened her with a pistol early in th...
Belfast knife attack disorder: I will never get over watching my home of 13 years burn down
📅 10.06.2026 👁️ 2
Belfast knife attack disorder: I will never get over watching my home of 13 years burn down
Families in Belfast, including one with a two-month-old baby, are counting the cost of Tuesday night's violence after being forced to flee their homes...
Út­lit fyrir besta dag sumarsins á föstu­daginn - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Út­lit fyrir besta dag sumarsins á föstu­daginn - Vísir
Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að gangi spár eftir berist hingað til lands hlýtt loft úr austri og norðaustri og að sí...