Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot sem áttu sér stað í nótt. Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir öll brotin tengjast hátíðarhöldum á Kótelettunni þó að þau hafi ekki öll átt sér stað innan hátíðarsvæðisins.
Kótelettuhátíðin náði hámarki í gærkvöld og fjórir gistu fangaklefa í nótt.
Í tilkynningu lögreglu segir að töluverð ölvun hafi verið á svæðinu og töluvert af ungmennum undir lögaldri sem reyndu að komast inn á svæðið með fölsuðum skilríkjum eða skilríkjum annarra.
Lögreglu barst tilkynning um heimilisofbeldi. Einn gisti fangaklefa sökum þess.