Þriðjungur íbúa í Ituri-héraði í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þar sem ebólufaraldurinn sem nú geisar átti upptök sín, telur ebólu ekki raunverulega, samkvæmt könnun alþjóðlegu hjálparsamtakanna Action Aid. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá þessu. Aðeins 34 prósent svarenda gátu nefnt þrjár smitleiðir veirunnar.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins standa nú að fræðsluherferð um ebóluveiruna. Þeir ganga hús úr húsi í héraðinu, fræða og vinna gegn röngum upplýsingum. Sjálfboðaliðarnir útskýra fyrir fólki hvernig ebóla smitast og hvetja það til þess að leita sér læknishjálpar snemma komi einkenni fram. Þá er skilaboðunum einnig dreift með útvarpsþætti Rauða krossins.
Fólk reynir að endurheimta smituð lík ástvina
Lögregla í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó skaut viðvörunarskotumn þegar hópur fólks reyndi að endurheimta lík ástvina sem höfðu látið lífið úr ebólu í meðferðarstöð í bænum Mongwalu. Víða í landinu er hefð fyrir margra daga sorgartímabili þar sem margir heimsækja hinn látna og vaka yfir honum.
Lík ebólufórnarlambs er mjög smitandi og yfirvöld þurfa að tryggja örugga greftrun til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar.
Í síðustu viku kveikti hópur fólks í sömu meðferðar- og einangrunarstöð fyrir ebólusjúklinga vegna þess að aðstandendur manns sem lést úr veirunni fengu ekki að jarða hann. Fáeinum dögum síðar var kveikt í þremur tjöldum Lækna án landamæra og nokkrir sjúklingar flúðu.
Hvorki bóluefni né lyf eru til gegn bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar sem flestir hafa smitast af í þessum faraldri. Dánartíðni afbrigðisins er allt að 50 prósent.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnun (WHO) höfðu 85 tilfelli ebólu greinst síðastliðinn fimmtudag, 21. maí. Tíu hafa látist úr veirunni. Heilbrigðisráðuneytið í Úganda hefur staðfest sjö ebóluveirusmit.
Tölurnar eru þó líklega mun hærri, samkvæmt WHO er grunur um 746 tilfelli og 176 dauðsföll.
Fyrsta smitið af bundibugyo-afbrigðinu er talið hafa komið upp í lok apríl í Bunia, höfuðborg Ituri-héraðsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Þá var farið að prófa fyrir ebólusmitum en niðurstöðurnar voru neikvæðar þar sem ekki var hægt að prófa fyrir Bundibugyo-afbrigðinu. Í nokkrar vikur var þar af leiðandi í raun ekkert gert til að stöðva útbreiðsluna.