Að minnsta kosti 13 létust og 36 slösuðust, þar af sjö alvarlega, í jarðskjálfta í suðvesturhluta Japans í gær. Yfir níu þúsund hafast við í 506 fjöldahjálparstöðvum.
Upptök jarðskjálftans voru 20 kílómetra suður af Kumamoto, stærstu borg Kyushu, þriðju stærstu eyju Japans. Enn eru margir fastir í rústum verslunarmiðstöðvar í Kumamoto sem hrundi að hluta í skjálftanum og pappírsverksmiðju. Björgunarsveitir vinna hörðum höndum að því að bjarga fólki úr rústum.
Bandaríska jarðvísindastofnunin sagði skjálftann upphaflega 7,1 að stærð en breytti því síðan í 6,8.