Þjófnaður í Louvre-safninu í París í Frakklandi, þar sem þjófar stálu ómetanlegum verðmætum á sjö mínútum, verður að kvikmynd. Heimildaþættir eru einnig í bígerð.
Franski leikstjórinn Romain Gavras ætlar að leikstýra kvikmyndinni. Hann hefur meðal annars leikstýrt kvikmyndinni Sacrifice frá 2025 og tónlistarmyndböndum. Handritið byggir handritið á bókinni Main basse sur le Louvre eftir þrjá blaðamenn á Le Parisien, Le Monde og Paris Match. Hún kemur út í Frakklandi á morgun.
Kvikmyndin er enn í þróun og hefur ekki fengið nafn. Ekki hefur verið upplýst um hverjir leika í henni.
Þjófnaðurinn í Louvre-safninu 19. október í fyrra vakti heimsathygli. Innbrotsþjófar, íklæddir gulum vestum eins og iðnaðarmenn, óku vespum og körfubíl meðfram Fracois Mitterand-bryggju við suðurhlið safnsins sem snýr út að Signu.
Þeir námu staðar við Appolo-gallerí, sem var nýuppgert, og notuðu körfubílinn til að komast inn um glugga. Innan um gesti stálu þeir verðmætum og hröðuðu sér út. Þjófnaðurinn tók aðeins sjö mínútur.
Öryggismál á safninu voru í brennidepli eftir ránið og forstjóri þess, Laurence de Cars, var látinn fara í kjölfar þess. Málið hefur verið í rannsókn í sjö mánuði. Þrátt fyrir að þeir sem helst voru grunaðir um ránið hafi verið handteknir hafa skartgripirnir ekki enn komið í leitirnar.
Fjárhagslegt tjón safnsins vegna innbrotsins og þjófnaðarins er um 88 milljónir evra, jafnvirði tæplega tólf milljarða íslenskra króna.
Framleiðslufyrirtækið Iconoclast keypti réttinn að kvikmyndinni en breskur framleiðandi keypti réttinn að heimildaþáttaröð um ránið.