Hvalavinir efndu til mótmæla við Reykjavíkurhöfn í dag en hvalveiðiskipin Hvalur 8 og 9 héldu til veiða fyrr í vikunni.
„Það hefur náttúrulega ekki þurft að mótmæla í nokkur ár vegna þess að það hefur ekki verið farið út á veiðar í nokkur ár,“ segir Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina, í samtali við mbl.is. Það hafi verið gott að hrista hópinn saman.
Fyrir mótmælin var haldin skiltagerð í Hafnarhúsinu og gengið þaðan að Reykjavíkurhöfn þar sem bátarnir eru venjulega. Þar voru svo haldnar ræður og almenn umræða um málefnið fór fram.
Fyrstu mótmæli í nokkur ár
Valgerður segir um 80 manns hafa mætt sem megi teljast mjög gott á þessum árstíma. „Það er mjög mikilvægt að þeir sem láta sig hvalina varða hittist og finni samstöðuna hver hjá öðrum. Mjög mörgum er annt um þetta málefni.“
Hún segir aðalákall mótmælenda vera að stjórnvöld geri eitthvað í hvalveiðum. Þau séu búin að reyna allar lýðræðislegar leiðir.
„Kannanir sýna að meirihluti Íslendinga er á móti þessum veiðum. Einnig hefur verið sýnt fram á að við erum að tapa á þessum veiðum efnahagslega. Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að gera í dag og við köllum eftir því að stjórnvöld hafi hugrekki til að stöðva þetta.“
Drápsaðferðirnar sem notast er við hvalveiðar kallar hún brot á lögum um velferð dýra. Stjórnvöld þurfi að standa í lappirnar og vernda hvalina fyrir ónauðsynlegum drápum og pyndingum.
Hólmsteinn mætti að mótmæla
Stutt er síðan mótmæli Hólmsteins Harðarsonar vöktu mikla athygli þegar hann kom sér fyrir í tunnu mastursins á hvalveiðiskipinu Hval 9. Þá var hann skráður sem farþegi skipsins og siglt af stað með hann enn um borð frá Reykjavíkurhöfn til Hvalfjarðar.
Þá vildi Hólmsteinn meina að hann hefði ekki vitað hverju hann hafi verið að svara er hann var beðinn um upplýsingar sem áhöfn skipsins notaði til þess að skrá hann sem farþega.
Hann var viðstaddur mótmælin í dag.
Valgerður segir að gott hafi verið að sjá Hólmstein á mótmælunum, hann sé brattur enda „einstaklega mikill rólyndismaður“. Hún dáist að jafnaðargeði hans miðað við það sem hann gekk í gegnum.





