„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir

„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir

„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir

„Eins og staðan er í kerfinu núna þegar að hátt í fimmtíu prósent drengja eru að útskrifast eftir tíu ára grunnskólagöngu með svo slæman lesskilning að stór hluti þeirra á enga framtíðarmöguleika inni í menntakerfinu,“ segir Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra en hún var til viðtals um menntamálin í Sprengisandi í morgun. 

Gífurlega mikið brottfall sé úr framhaldsskólum hérlendis og það sé meira en í löndunum í kringum okkur. Nú sé verið að bregðast við vandanum á öllum sviðum. „Ég hefði ekki sest í þennan stól nema til þess að bretta upp ermar og taka á vandanum eins og ég mögulega get á þessum tíma.“ Matsferill hafi verið lagður fyrir nemendur í fyrsta sinn í vor og verði einnig á næsta ári og samanburður verði gerður á milli ára. 

Gríðarlega umfangsmikið verkefni

Margt hafi haft áhrif á getu skólakerfisins til að þjónusta öll börn samkvæmt þeirra þörfum og getu. Einkunnagjöf hafi verið óskýr og ósamræmd síðustu ár en hvorki ungmenni né kennarar „eða yfirhöfuð nokkur annar“ hafi vitað hvað einkunn nemenda stæði fyrir.

Inga segir að aðalnámsskrá verði endurskoðuð en kennarar þurfi að vita til hvers sé ætlast af þeim. Kennarar séu settir í ofboðslega þrönga og erfiða stöðu með núverandi námsskrá. „Við finnum það að kennararnir okkar sumir hverjir eru bara orðnir alveg yfir sig þreyttir. Og við megum ekki missa fólkið okkar frá okkur.„

„Það er ekki eftir neinu að bíða. Það þarf ekki fleiri samtöl, það þarf ekki fleiri skýrslur, það þarf ekki hillumetra eða meiri peninga í einhverjar rannsóknir. Við erum að sjá það á hverju einasta ári þegar börnin okkar eru að útskrifast úr tíunda bekk hver raunstaða þeirra er. Þetta gengur ekki svona lengur. 

Þess vegna tók ég að mér þetta verkefni sem ég hefði nú kannski hugsað mig um tvisvar, þrisvar ef ég hefði raunverulega vitað hversu umfangsmikið það er.“

Ýmis mál sem ekki megi nefna við kennaraforystuna

PISA-kannanir, einkunnaskalinn umdeildi og fjöldi kennsludaga sé meðal þess sem hafi verið þyrnir í augum kennaraforystunnar. Von sé á nýrri PISA-könnun í haust en búist er við því að hún verði „sú alsvartasta til þessa.“ Sérfræðingar í ráðuneytinu viti hvar skórinn kreppir og hafi reynt að vekja athygli á ýmsum málum sem hafi verið kæfð í fæðingu.

„Það eru þarna ákveðin atriði sem aldrei má nefna við Kennarasambandið, við stéttarfélag kennara, þá fer allt upp í loft.“

Inga segist þó finna fyrir því að við umræðu um innviðaskuld í menntakerfinu sé kennaraforystan „að vakna og vilja taka þátt með okkur og vilja viðurkenna stöðuna eins og hún er núna eins og við sjáum í beinni útsendingu.“

Námsgagnaframleiðsla sé í skötulíki og ljóst sé að fjármunum hafi ekki verið forgangsraðað fyrir „fólkið fyrst.“ „Það eru mjög margir kennarar sem sitja bara uppi með það í grunnskólanum að þeir eru sjálfir að reyna að búa til efni fyrir nemendur sína til þess að sínum metnaði að reyna að aðstoða nemendurna eftir bestu getu því að það er stökkbreyting á öllum sköpuðum hlutum á síðustu áratugum.“

Gert sé ráð fyrir sex hundruð milljóna viðbótarfjármagni í námgagnaútgáfu í fjárlögum og Inga bindur miklar vonir við að geta nýtt það fjármagn vel. 

Kjarnafögin mæti afgangi

Meiri miðstýringu þurfi í framhaldsskólum landsins og samræma þurfi nám frekar en til þess séu námskrár. Styrkja þurfi kennara til þess að þeir viti til hvers sé ætlast af þeim. Kjarnafögin, stærðfræði, íslenska og náttúrufræði, hafi verið grunnur að öllu námi á árum áður en mæti nú afgangi. „Það er ekki hægt að í tuttugu og sjö framhaldsskólum sé bara í rauninni hver með sínu nefi að stýra því.“

Fáir kennarar séu sérhæfðir í því fagi sem þeir kenna. Hrein mismunun sé á milli landshluta en niðurstöður spurningalista sýni fram á að enginn kennari á Austfjörðum sé sérhæfður í sinni faggrein. Á höfuðborgarsvæðinu séu flestir sérhæfðir kennarar í framhaldsskólum á landsvísu, eða um þrjátíu prósent þeirra.

„Þetta er erfitt fyrir kennarana sem eru í þessum litlu sveitarfélögum og taka að sér að kenna börnunum okkar. Það er erfitt fyrir þá að sitja uppi með það að þurfa að kenna eitthvað sem þau hafa ekki sérhæfingu í. En einhver verður að kenna börnunum og þá lendir það bara á þér. Hvort sem þér líkar betur eða verr, þá bara gjörðu svo vel. Þú skalt fara að kenna algebru, Kristján, og ekkert múður með það.“

Mikil umræða skapaðist á síðasta ári þegar kom í ljós að dregið hefði verulega úr lestri verka eftir nóbelsskáldið Halldór Laxness í framhaldsskólum landsins. Aðspurð um skerðingu á lestrar- og bókmenntakennslu í skólakerfinu telur Inga dvínandi lesskilning barna og unglinga vera grundvallaratriði í þeirri umræðu.

„Þau eiga það erfitt með grundvallarfagið sem er lestur og lesskilningur að það er í rauninni lítið gagn í því að þvinga einhvern til að lesa Snorra-Eddu eða Gísla sögu Súrssonar þegar einstaklingurinn hefur í rauninni ekki hugmynd um hvað hann er að lesa.“

Bindur miklar vonir við svokallað símafrí

Í Finnlandi hafi orðið hraðar og jákvæðar breytingar innan kennslustofunnar og í líðan barnanna þar í landi í kjölfar þess að símar hafi verið bannaðir í skólum. „Þá er verið að einbeita sér að því að barnið fái að vera ungmenni og læra, ekki upptekið af TikTok.“ Hún bindi því miklar vonir við símafrí í grunnskólum sem og takmörkun aðgengis ungra barna að samfélagsmiðlum „sem eru oft og tíðum fórnarlömb óæskilegra atburða þar. “

#algjörlega #einu #hjá #óafsakanlegt #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262908403d/-thetta-er-algjorlega-oafsakanlegt-hja-einu-af-rikustu-londum-i-heimi-

📰 Aðrar fréttir

Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 1
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...