Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir verðmun á loðnu á Íslandi og í Færeyjum sláandi. Í svari ráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörnsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, kom fram að meðalverð á landaðri loðnu til frystingar væri þrefalt hærra í Færeyjum en á Íslandi.
Meðalverð hérlendis er rúmlega 80 krónur en 250 krónur í Færeyjum.
Ráðherra segir það viðvarandi verkefni að þjóðin fái sanngjarnan hlut af raunverulegu aflaverðmæti.
„Þá liggur það bara fyrir að þessi munur er sláandi. Og þetta er auðvitað nátengt því sem ég hélt ítrekað fram í umræðunni um leiðréttingu veiðigjalda fyrir ári síðan að það er, þegar um er að ræða viðskipti tengdra aðila hér á landi, illmögulegt að ná fram raunverulegu markaðsvirði og það er það sem verið er að gera. Við leiðréttinguna tókum við loðnuna út fyrir sviga af þessum helstu nytjastofnum okkar vegna þessara sérkenna sem ég nefni,“ segir Hanna Katrín.
Nú sé unnið að því að ná utan um það hvernig hægt sé að tryggja að veiðigjöldin séu af raunverulegu markaðsverðmæti loðnu.
„En byggi ekki á þessu innra mati sem er að myndast.“