Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að það sé mikilvægt að stilla betur saman strengi í baráttunni við verðbólguna. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld þurfi að taka af meiri alvöru utan um vandann.
Verðbólgan mælist 5,6% og forsendur kjarasamninga frá 2024 því brostnar. Það eru, að mati SA, mikil vonbrigði að ekki hafi náðst betri árangur síðasta árið.
„Við erum búin að tapa heilu ári í baráttunni við verðbólguna,“ segir Bjarni. Hann segir að síðastliðið ár hafi verðbólgan aukist vegna hækkana hjá hinu opinbera en þá hafi utanaðkomandi áhrif sem Íslendingar hafa ekki stjórn á einnig spilað inn í.
„Við þurfum að taka það líka til okkar. Það þarf að gæta að því þegar gerðir eru kjarasamningar að menn ráðstafi ekki fyrir fram svo ríflega öllu svigrúmi að það megi ekkert á bjáta.“
Bjarni segir að ekki dugi að bregðast við með skammtímaúrræðum heldur verði að vinna að því að gera betur inn í framtíðina.
Þarf skynsamlegar aðgerðir
„Verkefnið er ekki bara það að bjarga kjarasamningum. Verkefnið er að ræða skynsamlegt viðbragð við þeirri stöðu að verðbólgan mælist hærri heldur en gert var ráð fyrir í kjarasamningunum.“
Bjarni segir Samtök atvinnulífsins tilbúin að eiga samtal sem rennir stoðum undir skynsamlegar aðgerðir.
„Það eru langstærstu hagsmunir heimila, langstærstu hagsmunir fyrirtækja og miklir hagsmunir fyrir opinbera aðila að við komumst úr þessu vaxtastigi sem hefur verið svo hátt svo lengi,“ segir hann.