„Við erum með kerfi sem hefur molnað undan í 15, 20, 25 ár og það að einhver bendi á það, þeir eru bara sendiboðar og það er bara gott að menn séu að ræða þessi mál. Menn geta ekki verið viðkvæmir fyrir því.
Menn verða bara að horfast í augu við að þetta er vandi sem við þurfum að leysa. Við höfum ekki verið á þeirri vegferð að leysa hann síðustu árin. Þetta sýna bara niðurstöðurnar.“
Þetta segir Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi grunnskólakennari, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri til fjölda ára, í Dagmálum er rýnt var í einkunnakerfi í grunnskólum.
„Ef við næðum að breyta þessu þrennu“
Hvað er mikilvægt að gera, hverju þarf að breyta og hvað er mikilvægast að ráðast strax í?
„Ég myndi segja að það sé algjörlega nauðsynlegt að vera með samræmd, almennileg próf sem prófa úr öllum viðmiðum námskrár. Það þarf að skipta um námskrá, koma með námskrá sem er þess eðlis að samfélagið skilji hana. Við erum að laga kennaramenntunina. Við erum með fullt af frábærum kennurum og við þurfum að lyfta þeim upp og fjölga þeim.
Ef við næðum að breyta þessu þrennu; nýja námskrá, samræmt námsmat og laga kennaramenntun og fjölga umsóknum í kennaranám þannig að við getum valið úr umsóknum þá erum við komin mjög langt á veg.“
Annars segir Jón Pétur að við munum halda áfram á þessari sömu leið. Færri og færri munu skilja það sem talað er um. Færri og færri geti lesið blöðin og texta sem er kannski meira en hundrað orð.
„Við megum ekki gleyma því að til að skilja texta þá þarf að skilja 98% orðanna í textanum. Ef þú skilur það ekki þá nærðu ekki innihaldi textans. Þú gefst líka mjög fljótt upp þegar þú ert ekki með nógu góðan orðaforða og finnur það bara að þú ræður ekki við textann. Þá ferðu bara frekar í símann og ferð að skrolla í TikTok.“
Brot úr þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Áskrifendur geta horft á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan.