Í hverri viku koma upp mál á Keflavíkurflugvelli sem tengjast vændisstarfsemi. Lögreglan telur að mestöll vændisstarfsemi hérlendis tengist mansali og skipulagðri brotastarfsemi.
Kveikur var á staðnum sumarið 2024 þegar ung kona var stöðvuð í flugstöðinni við komu sína til landsins.
„Hún er búin að koma til landsins fimm sinnum. Við höfum haft afskipti af henni í Reykjavík, komið í íbúðina hennar, þar sem hún er í undirfötum – ekki með skilríki eða vegabréf meðferðis,“ segir lögreglumaður á Suðurnesjum um konuna.
Lögreglumaðurinn starfar við viðkvæman málaflokk og kýs að láta nafns síns ekki getið. Konan var á þessum tíma nýorðin tvítug og var stöðvuð vegna farangurs sem talinn var óvenjulegur; mikið af smokkum og nærfötum.
„Hér er líka bókað: Grunur um mansal, kynferðisleg hagnýting. Hér er kominn maður sem hefur mjög líklega flutt þær inn, hann er með langan lista af málum á sér,“ segir lögreglumaðurinn þar sem hann situr við tölvuna.
Lögreglumaður sem hafði áður rætt við konuna tók af henni skýrslu.
Svo þú ert komin aftur?
Já, ég er komin aftur.
Hvað er í gangi? Af hverju komstu aftur?
Af því mér líkar það.
Hvað ætlarðu að gera á Íslandi?
Ekki neitt. Mér líkar við Ísland.
Þegar hún var spurð hvort hún greiddi skatta af tekjum sínum á Íslandi sagðist hún hafa verið barn þegar hún var hér áður og ekki vitað hvernig hún ætti að greiða skatta. Hún staðfesti að hafa starfað við vændi.
„Maðurinn sem tengist henni var stöðvaður við akstur og var þá með vegabréf og skilríki annarra kvenna. Sá maður er stjúpfaðir hennar,“ segir lögreglumaðurinn.
Hann virðist þá hreinlega gera hana út?
„Já, hana og mömmu hennar, sem er kærasta mannsins, hann er frá Nígeríu.“
Lögreglumaðurinn segir fjölda mála sem tengjast vændi koma upp á Keflavíkurflugvelli í hverri viku.
Enn fremur kemur reglulega upp hér á landi að konur séu gerðar út í vændi af fólki sem þær þekkja vel. Tíu vændismansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar í fyrra. Í sjö málanna voru gerendur makar, ættingjar eða kunningjar brotaþola.
Umfjöllun Kveiks um málið má finna í spilaranum hér að ofan.