Fyrstu laxarnir eru komnir á í Norðurá. Ævar Úlfarsson landaði fyrsta laxinum á Eyrinni þegar klukkan var að ganga tíu. Menn voru slakir og fóru ekki út fyrr en á níunda tímanum. Þegar þetta er skrifað vitum við um tvo laxa af Eyrinni, einn af Brotinu og þann fjórða af Bryggjunum. Rafn Valur Alfreðsson, rekstraraðili Norðurár landaði 93 sentímetra hæng sem tók Collie dog neðst í veiðistaðnum. „Þetta var rosalega sterkur fiskur og fór með mig niður í almenning. Ég ætlaði að stoppa hann en það var aldrei möguleiki. Ég þurfti að hlaupa. Þegar ég landaði þessum fiski þá nánast táraðist ég svo fallegur er hann. Ég held að þetta sé fullkomnasta eintak af laxi sem ég hef veitt í mörg ár,“ sagði Rafn Valur í samtali við Sporðaköst skömmu eftir að hann var búinn að þurrka tárin.
Fyrr um morguninn hafði Rafn verið að kasta með félaga sínum Jóhanni Birgissyni. Þeir voru búnir að fara með hitchaðan Sunray yfir staðinn og rauða Frances flugu númer fjórtán. Fiskar voru að sýna sig. Sporðaköst stungu upp á Collie dog. Þá hló Rafn og sagðist hafa verið að setja hana undir.
Hvað tók hann Rafn?
„Nú Collie. Við vorum búnir að ræða það, var það ekki?“ hló hann.
Á meðan að Rafn tókst á við hænginn, setti Nuno Alexandre Bentim Servo veitingamaður í lax skammt frá. Á hinum bakkanum landaði svo Brynjar Þór Hreggviðsson staðarhaldari þeim fjórða. Opnunin fer hressilega af stað í Norðurá, eins og margir bjuggust við. Verður fróðlegt að sjá framhaldið.
Norðurá er í frábæru vatni og skilyrði eins og best verður á kosið.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 100 cm | Hrútafjarðará | Jón Tómas Rúnarsson | 23. september 23.9. |
| 102 cm | Ytri Rangá | Skjöldur Pálmason | 21. september 21.9. |
| 100 cm | Miðá í Dölum | Eyrún Ýr Guðmundsdóttir | 21. september 21.9. |
| 100 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 18. september 18.9. |
| 101 cm | Miðsvæðið Laxá í Aðaldal | Helgi Jóhannesson | 17. september 17.9. |
| 105 cm | Hofsá | Sveinn Blöndal | 15. september 15.9. |
| 106 cm | Laxá í Aðaldal | Sigvaldi A. Lárusson | 14. september 14.9. |

