Það sem af er ári er einn af hverjum þremur nýskráðum bílum rafdrifinn hérlendis, eða tæp 34 af hundraði. Það er öllu hærra en að meðaltali á meginlandi Evrópu og Bretlandi þar sem hlutdeild þeirra var 19,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi, samkvæmt gögnum frá samtökum evrópskra bílaframleiðenda (ACEA).
Nýskráningum bíla hérlendis hefur fjölgað um 24 af hundraði það sem af er þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins. Það sem af er ári hafa 4.150 nýir bílar farið á götuna samanborið við 3.346 á sama tíma 2025.
FÍB fjallar um málið á fréttavef sínum og segir hlutdeild rafbíla á Evrópumarkaði hafa aukist úr 15,2 prósentum í fyrra. Kínverskir rafbílaframleiðendur hafa þar sótt mikið í sig veðrið.
Hybrid-bílar eru að sögn FÍB langvinsælasti kostur bílkaupenda í Evrópu með tæplega 39 prósenta markaðshlutdeild. Hérlendis er hlutfall þeirra tæp 29 prósent. Þýskaland er enn stærsti bílamarkaður Evrópu en Frakkar og Bretar keyptu talsvert af farartækjum í mars.
Bílasala í Evrópu glæddist allur nokkuð í þeim mánuði eftir rólega byrjun og þegar upp var staðið jókst heildarsalan á fyrsta ársfjórðungi um fjögur af hundraði samanborið við síðasta ár. Greinendur eru varkárir varðandi framhaldið enda geti hátt orkuverð og efnahagsóvissa dregið úr kaupmætti þegar líður á árið.