Þegar Nazar Daletskyi kom til baka úr haldi Rússa ásamt fjölda stríðsfanga í febrúar var enginn úr fjölskyldunni sem beið hans. Þau héldu að hann væri látinn.
Árið 2023 fékk fjölskylda hans tilkynningu um að hann hefði verið drepinn í árás á bílalest í Kupiansk árið áður. Það hafi verið staðfest með DNA-rannsókn.
Móðir hans hafði þó efasemdir því að hún hafði fengið tilkynningu um að Rússlandsher héldi honum í fangelsi. Þetta var í byrjun stríðsins og þær reglur ekki komnar að hermenn gæfu DNA-sýni áður en þeir væru sendir á víglínuna. „Það tekur mikið á að jarða son sinn. Að fara í kirkjugarðinn, biðja fyrir hinum látnu og hann svo á lífi. Það er erfitt,“ sagði móðir Daletskyis í viðtali á dögunum.
Allan þennan tíma var Daletskyi í haldi Rússa. Fjölskyldan fékk sent lík, sem var brennt og ekki hægt að bera kennsl á það öðruvísi en með DNA-prófi. Yfirvöld segja að ekki hafi verið farið nægilega vel yfir niðurstöðu DNA-rannsóknar eftir árásina.
Móðir hans var bæði glöð og hissa þegar hann hringdi, kominn til Úkraínu. Sjá má viðbrögð hennar í myndbandinu hér fyrir neðan:
Síðan Daletskyi hlaut frelsi hefur hann varið mestum sínum tíma með fjölskyldunni. Síðar ætlar hann að reyna að finna vinnu við hæfi. Þá langar hann að ferðast og hvíla sig.
Honum hugnast ekki að fara aftur í herinn. „Ég er ekki vel hraustur, finn til í fótunum. Ég þarf að ná mér fyrst en ég hef þegar skilað mínu. Mig langar ekki í herinn.“